Instagram: Heiðdís og Gugga í essinu sínu

Sólmyrkvinn setti engan skugga á Instagram í vikunni.

Sólmyrkvinn setti engan skugga á Instagram í vikunni. Samsett mynd

Það var líf og fjör á Instagram í vikunni og þrátt fyrir að sólmyrkvinn hafi skellt skugga á landið á miðvikudag var hvergi myrkur á miðlunum.

Margir gripu tækifærið og fönguðu augnablikið á mynd, á meðan aðrir deildu brotum úr sumarfríum, samverustundum og ýmsu öðru stuði sem setti svip sinn á vikuna.

Náttúran eins og póstkort

Heiðdís Rós Reynisdóttir förðunarfræðingur er flutt aftur heim til Íslands eftir langa dvöl vestanhafs. Hún fagnar heimkomunni og segir engan stað jafnast á við Ísland.

„Ég á afmæli!“

Guðrún Svava Egilsdóttir sem betur er þekkt undir nafninu Gugga í gúmmíbát, deildi mynd af sér í tilefni afmælis síns þann 11. ágúst. 

Ástfangin í Alþingisgarðinum

Turtildúfurnar Vigdís Häsler og Sveinn Andri Sveinsson giftu sig í sumar með pompi og prakt. Vigdís deildi fallegri mynd af þeim hjónum í tilefni afmælis Sveins Andra.

Snípstuttur í New York

Raunveruleikastjarnan og þúsundþjalasmiðurinn, Patrekur Jaime, birti færslu á Instagram-síðu sína í vikunni þar sem hann skrifaði við: „Snípstuttur í New York, aldrei vekja mig 🇺🇸.“

Þakklát Björk

Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir tryllti lýðinn á Víðistaðatúni í tilefni sólmyrkvans á miðvikudag. Þakklæti var henni efst í huga ef marka má færslu sem hún deildi á Instagram.

Ennþá sjúk í hann

Salka Sól Eyfeld deildi hugljúfri færslu í tilefni brúðkaupsafmælis hennar og Arnars Freys Frostasonar í vikunni. Við færsluna skrifaði hún: „Gift í 7 ár- saman í 11- ennþá sjúk í hann 💕 Sumarið var muy bueno með honum og öllu fólkinu okkar ☀️“.

Sólmyrkva-Bríet

Tónlistarkonan Bríet deildi færslu á Instagram-síðu sinni í tilefni sumarsins og sólmyrkvans.

Hafmeyja

Dansarinn Tara Sif Birgisdóttir skellti sér í Laugarás Lagoon í vikunni og leið eins og hafmeyju.

„Á leið inn í sólmyrkva“

Hjónin Bubbi Morthens og Hrafnhildur Hafsteinsdóttir létu sólmyrkvann ekki fram hjá sér fara.

Tilbúin í brúðkaup

Lögmennirnir Diljá Helgadóttir og Snæbjörn Valur Óskarsson skelltu sér í brúðkaup norður í land.

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅