Auðunn og Wang nýtt par

Auðunn Lúthersson og Tokie Wang eru nýtt par.

Auðunn Lúthersson og Tokie Wang eru nýtt par. Ljósmynd/Instagram

Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, eða Auður eins og hann kallar sig, hefur fundið ástina. Sú heppna heitir Tokie Wang og er leikkona og dansari. Hún hefur unnið með þekktum listamönnum. 

Parið kynntist við tökur á tónlistarmyndbandi fyrir Madonnu og Sabrinu Carpenter  í Los Angeles í Bandaríkjunum. Um er að ræða lagið Bring Your Love með þeim stöllum. 

Auðunn hefur búið í Bandaríkjunum í nokkur ár og hefur unnið við tónlist. Hann fékk hlutverk í hryllingsmyndinni Crowbar sem verður frumsýnd á næsta ári. Hann er þó á leiðinni til Íslands því hann verður með tónleika í Austurbæjarbíói 4. september.

Wang er ekki bara dansari og leikkona því hún er handlagin og sýnir prjónaskap á Instagram-síðu sinni. 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅