Lést í bílslysi aðeins 57 ára
Mathilde Favier, stjórnandi almannatengsla hjá tískuhúsinu Christian Dior, og eiginmaður hennar, Nicolas Altmayer kvikmyndaframleiðandi, létust í bílslysi í vesturhluta Frakklands í gær. Favier var 57 ára og Altmayer 61 árs.
Samkvæmt erlendum fjölmiðlum varð slysið þegar bifreið þeirra lenti í árekstri við vörubifreið á meðan þau reyndu að taka fram úr öðrum bíl.
Tískuhúsið Dior greindi frá andláti Favier í yfirlýsingu í morgun og minntist hennar sem einstakrar konu sem hefði átt stóran þátt í að byggja upp hátískuhús Christian Dior.
„Dior tilkynnir með mikilli sorg um andlát Mathilde Favier sem lést af slysförum. Í starfi sínu sem almannatengslastjóri lagði Mathilde margt af mörkum til orðspors Christian Dior Couture með elju sinni og glæsileika,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu fyrirtækisins.
Þar var henni jafnframt lýst sem einstakri konu sem hefði smitað út frá sér gleði og verið öðrum fyrirmynd með hæfileikum sínum og tryggð.
Delphine Arnault, forstjóri Dior, minntist Favier einnig með hlýjum orðum og sagði fyrirtækið hafa misst framúrskarandi fagmann og sjálf náinn og tryggan vin.
„Mathilde hafði ástríðu fyrir lífinu. Með fráfalli hennar missir Dior ótrúlegan fagmann og ég hef misst tryggan vin,“ sagði Arnault.
Hún sagði bjartsýni og hugrekki Favier hafa vakið aðdáun þeirra sem í kringum hana voru. Bros hennar og hæfileikar myndu skilja eftir sig stórt skarð og hugur hennar væri hjá börnum Favier, móður hennar, systrum, fjölskyldu, vinum og samstarfsfólki.
Favier lætur eftir sig tvö börn, Héloïse Agostinelli, 27 ára, og Carlo Agostinelli, 25 ára. Faðir þeirra er Robert Agostinelli, fyrrverandi eiginmaður Favier, milljarðamæringur og einn stofnenda fjárfestingarfélagsins Rhône Group.
Favier giftist síðar Antoine Meyer en eftir að því hjónabandi lauk fann hún ástina á ný með Nicolas Altmayer.
Starfaði hjá Dior í meira en áratug
Favier hafði starfað hjá Dior í rúmlega 13 ár og var vel þekkt innan alþjóðlegs tískuheims. Áður hafði hún meðal annars starfað hjá tímaritinu Glamour og ítalska tískuhúsinu Prada.
Altmayer var áberandi nafn í franskri kvikmyndagerð og hafði komið að framleiðslu meira en 80 kvikmynda á ferli sínum.
Favier var jafnframt þekkt fyrir fágaðan persónulegan stíl og hafði rætt opinberlega um ást sína á fallegum hlutum og mikilvægi þess að gera hversdaginn sérstakan.
— Dior (@Dior) August 18, 2026Dior is deeply saddened to announce the accidental death of Mathilde Favier. In her role as Director of Public Relations, Mathilde Favier made an incredible contribution to the reputation of Christian Dior Couture through her commitment and elegance.
She was an exceptional woman… pic.twitter.com/WkKYpU8f5w
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
