People fjallar um draumabrúðkaup Katrínar Tönju
Bandaríska tímaritið People fjallar ítarlega um brúðkaup íslensku CrossFit-stjörnunnar Katrínar Tönju Davíðsdóttur og Brooks Laich, fyrrverandi atvinnumanns í íshokkí, en þau gengu í hjónaband á heimili sínu í Idaho-ríki í Bandaríkjunum um helgina.
Katrín Tanja, sem er 33 ára, og Laich, 43 ára, fögnuðu stóra deginum með 110 fjölskyldumeðlimum og nánum vinum. Hátíðarhöldin stóðu yfir í þrjá daga og komu margir gestanna langt að, meðal annars fjölskylda Katrínar frá Íslandi og Lundúnum og fjölskylda Laich frá Kanada.
Meðal þekktra gesta voru CrossFit-stjarnan Anníe Mist Þórisdóttir, náin vinkona Katrínar Tönju, og bandaríska CrossFit-stjarnan Brooke Wells. Báðar deildu þær myndum frá brúðkaupshelginni á samfélagsmiðlum.
„Þetta var draumur sem varð að veruleika fyrir okkur bæði,“ segir Laich í samtali við People.
Draumabrúðkaup við vatnið
Parið trúlofaði sig í desember 2024 og hafði frá upphafi stefnt að því að gifta sig á heimili sínu við Lake Coeur d’Alene. Brúðkaupsathöfnin fór fram undir berum himni þar sem þau skiptust á heitum með vatnið og furutré sem teygðu sig til himins í bakgrunni.
Tíu mánaða gömul dóttir þeirra, Emberly, tók þátt í athöfninni og var borin að altarinu af Laich, þar sem hún var hluti af hjónavígslunni. Husky-hundurinn þeirra, Koda, tók einnig þátt í hátíðahöldunum og klæddist glæsilegum smóking.
Katrín Tanja klæddist ermalausum brúðarkjól frá WONÁ Concept með hárri klauf og bar perluskartgripi sem tilheyrðu ömmu hennar heitinni.
Ógleymanleg stund með afa
Að athöfninni lokinni snæddu gestir kvöldverð á tveimur flekum sem flutu á vatninu. Síðar tók við dansleikur með lifandi tónlist og dönsuðu nýgiftu hjónin sinn fyrsta dans við lagið I Just Love You með Roo Panes, sama lag og hljómaði þegar Laich bað Katrínar Tönju.
Eitt eftirminnilegasta augnablik kvöldsins var þegar Katrín Tanja dansaði við 85 ára afa sinn við lagið What a Wonderful World með Louis Armstrong. Hún sagði afa sinn og látna ömmu hafa verið sér mikilvægar fyrirmyndir þegar kæmi að ást og hjónabandi.
Hátíðarhöldunum lauk á sunnudeginum með stranddegi og dögurði í anda sjötta áratugarins á heimili hjónanna.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/67/13/1671341.jpg)