Ofurlaun og fólkið sem mætti í leyniteiti á Álftanesi

Vikan var viðburðarrík á Smartlandi. Marta María Winkel, fréttastjóri dægurmála mbl.is og höfundur Smartlands Mörtu Maríu, fór yfir fréttir vikunnar og tók saman allt það helsta.

Hvað er allt þetta fólk að fá í laun? 

Sunneva Eir Einarsdóttir er tekjuhæsti áhrifavaldur Íslands en hún er líka hlaðvarpsstjarna og fellur ekki verk úr hendi. Er ekki frábært að hún þéni svona vel?

Sunneva Eir Einarsdóttir er tekjuhæsti áhrifavaldurinn.

Sunneva Eir Einarsdóttir er tekjuhæsti áhrifavaldurinn. Ljósmynd/Instagram

Sigga Beinteins rakar inn peningum!

Sem er ekkert skrýtið því hún er alltaf að og alltaf jafnvinsæl. 

Sigga Beinteins er launahæsta söngkona landsins.

Sigga Beinteins er launahæsta söngkona landsins. Ljósmynd/Mummi Lu

Talandi um ofurkonur og peninga! 

Gréta María Grétarsdóttir fyrrverandi forstjóri Prís hefur stofnað fyrirtæki með einstöku nafni. 

Gréta María Grétarsdóttir hefur stofnað fyrirtæki.

Gréta María Grétarsdóttir hefur stofnað fyrirtæki. Ljósmynd/Íris Dögg Iris Einarsdóttir

Íbúð með æfingasal!

Eik Gísladóttir flugfreyja hjá Icelandair hefur sett draumaíbúðina á sölu. Hún er með einu flottasta leikfimishorni sem fyrirfinnst. 

Eik Gísladóttir flugfreyja hjá Icelandair hefur sett íbúð sína á sölu. Samsett mynd

Sjáðu hárið, förðunina, kjólana og skartið! 

Eitt flottasta teitið var haldið í Hlöðunni á Álftanesi í vikunni þegar Blue Lagoon Skin Science bauð í veislu til að kynna nýja varamaskann. Þar voru allir, eða næstum því allir, en myndir úr teitinu munu birtast á Smartlandi eins fljótt og þær koma úr framköllun. 

Góða helgi og njótið lífsins! 

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅