Manstu þegar Anna Mjöll giftist 91 árs gömlum bílasala?

Anna Mjöll Ólafsdóttir og Cal Worthington giftust 9. apríl 2011.

Anna Mjöll Ólafsdóttir og Cal Worthington giftust 9. apríl 2011.

Smartland varð 15 ára 5. maí. Af því tilefni hefur ritstjórn Smartlands tekið sig saman og tínt til gullmola síðustu 15 ára. Á þessum tímamótum er fjör að rifja upp allt þetta skemmtilega, fyndna og dusta rykið af öllu því sem við vorum öll löngu búin að gleyma.

Árið 2011 gengu mörg sómapör í hjónabönd og þar á meðal söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir og bílasalinn Cal Worthington. 

Brúðkaup Önnu Mjallar og Cal vakti heimsathygli. Bílasalinn sem nú er látinn fæddist 1920 og var 91 árs þegar hann kvæntist Önnu Mjöll, sem er fædd 1970. 50 ára aldursmunur var á hjónunum en ástin spurði ekki um aldur. Það slitnaði þó fljótlega upp úr hjónabandinu og árið 2013 giftist hún Luca Ellis sem er söngvari. Þau fóru hvort í sína áttina 2014. 2019 fann Anna Mjöll ástina á ný þegar hún giftist Patrick Leonard, bandarískum lagahöfundi.

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅