Telja upp tíu kynþokkafyllstu Íslendingana
Birta Abiba Þórhallsdóttir, Rúrik Gíslason, Hildur Björnsdóttir og Friðrik Dór Jónsson sitja á listanum yfir tíu kynþokkafyllstu Íslendingana samkvæmt Guide To Iceland. Samsett mynd
Íslenska ferðaþjónustufyrirtækið og bókunarsíðan Guide To Iceland hefur birt lista yfir tíu kynþokkafyllstu Íslendingana á vefsíðu sinni.
Í textanum segir að Ísland sé þekkt fyrir eldfjöll, jökla og fossa en einnig fyrir það að hafa alið af sér óeðlilega mikið af myndarlegu fólki miðað við land þar sem íbúafjöldinn er minni en í stærstu borgum Evrópu.
Listinn byggir á formúlu þar sem tekið er mið af útliti, útgeislun, hæfileikum og menningarlegu vægi. Þá kemur einnig fram að það skipti máli hvort útlit viðkomandi hafi einhvern tímann orðið til þess að fólk gleymdi í augnablik hvað það var að tala um.
„Fegurð er auðvitað huglæg. En í sumum tilfellum er einfaldlega erfiðara að mótmæla en öðrum,“ segir á vefsíðunni.
Hér fyrir neðan er listi Guide To Iceland yfir kynþokkafyllstu Íslendingana.
10. Birta Abiba Þórhallsdóttir
Birta Abiba er fyrirsæta og fegurðardrottning. Hún var krýnd Miss Universe Iceland árið 2019 og varð þar með fyrsta konan af blönduðum íslenskum og afrískum uppruna til að vinna titilinn. Í kjölfarið keppti hún fyrir hönd Íslands í Miss Universe og komst í hóp tíu efstu.
Birta, sem á rætur að rekja bæði til Íslands og Kongó, hefur einnig talað opinskátt um reynslu sína af því að alast upp á Íslandi af blönduðum uppruna. Hún hefur meðal annars rætt mikilvægi sýnileika og sagst vilja vera sú fyrirmynd sem hún sjálf hefði viljað sjá þegar hún var barn.
9. Aníta Briem
Leikkonan Aníta Briem er sögð hafa haldið merki Íslands á lofti á alþjóðlegum vettvangi, sérstaklega í Hollywood, um árabil. Hún fór meðal annars með hlutverk Jane Seymour í The Tudors og Hönnu í Journey to the Center of the Earth. Síðar sneri hún aftur heim til Íslands og hefur síðan verið áberandi í íslenskum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
8. Friðrik Dór
Söngvarinn ástsæli Friðrik Dór Jónsson, einnig meðlimur hljómsveitarinnar IceGuys, situr í áttunda sæti listans. Hann bæði syngur eins og engill og lítur vel út!
7. Páll Óskar
Poppgoðsögnin og „mannlega diskókúlan“ Páll Óskar Hjálmtýsson er einnig á listanum. Hann hefur verið einn þekktasti skemmtikraftur landsins Íslands.
„Samt tekst honum einhvern veginn að birtast ár eftir ár eins og öldrun sé aðeins valfrjáls hugbúnaðaruppfærsla sem hann hafi einfaldlega hafnað,“ stendur í greininni.
6. Elín Hall
Leik- og tónlistarkonan Elín Hall er sögð vera reykvískur töffari með áberandi rautt hár. Hún sker sig úr án þess að virðast hafa nokkur fyrir því með sínum látlausa stíl og náttúrulegu útgeislun.
„Útlit hennar minnir líka skemmtilega á að íslenskur uppruni er ekki eingöngu norrænn. Ísland á sterk söguleg tengsl við keltneska heiminn, ekki síst vegna fólks sem kom hingað frá Írlandi og Bretlandseyjum á landnámsöld, bæði sem landnemar og þrælar. Rautt hár Elínar má því segja að kallist skemmtilega á við þessa hlið Íslandssögunnar sem fær kannski ekki alltaf mikla athygli.“
5. Hildur Björnsdóttir
Borgarstjóri Reykjavíkur, Hildur Björnsdóttir, er að sjálfsögðu á listanum. Í grein Guide To Iceland er sagt að hún hafi gefið Íslendingum sterka ástæðu til að fylgjast grannt með borgarmálunum eftir að hún varð kjörin.
„Stílhrein, fáguð og einstaklega yfirveguð hefur Hildur yfir sér þann svip að hún gæti stýrt erfiðum borgarstjórnarfundi, svarað sautján hvössum spurningum blaðamanna og gengið út að því loknu án þess að eitt einasta hár hefði færst úr stað.“
4. Sveindís Jane Jónsdóttir
Sveindís er ein fremsta knattspyrnukona Íslands og „er svo hröð að þú myndir líklega hvort sem er aldrei ná henni“.
Sveindís fæddist í Keflavík, dóttir íslensks föður og móður frá Gana. Hún hefur talað af stolti um blandaðan uppruna sinn og mikilvægi þess að standa fyrir báðar hliðar arfleifðar sinnar. Eftir að hafa skipað sér í fremstu röð í evrópskri knattspyrnu hélt hún til Bandaríkjanna þar sem hún gekk til liðs við Angel City FC í Los Angeles.
3. Viktor Gísli Hallgrímsson
Handboltamarkvörðurinn Viktor Gísli er ofarlega á listanum. Viktor er 204 sentímetrar á hæð, leikur með Barcelona og hefur skipað sér í hóp fremstu handboltamarkvarða Evrópu. Hann býr einnig yfir björtu brosi sem hefur heillað fólk og fjölmiðla um heim allan.
2. Kristrún Frostadóttir
Forsætiráðherrann Kristún Frostadóttir komst á listann yfir kynþokkafyllstu Íslendingana. Hún varð forsætisráðherra 36 ára að aldri og varð hún yngsti forsætisráðherra í sögu Íslands og á þeim tíma yngsti sitjandi ríkisstjórnarleiðtogi heims.
1. Rúrik Gíslason
Fyrsta sæti listans ætti ekki að koma neinum á óvart. Á HM í knattspyrnu árið 2018 birtist Rúrik á sjónvarpsskjám heimsbyggðarinnar í leik Íslands gegn Argentínu og varð nánast samstundis að alþjóðlegu netfyrirbæri. Fylgjendum hans á samfélagsmiðlum fjölgaði gríðarlega, myllumerkið #SexyRurik fór á flug og erlendir fjölmiðlar fengu skyndilega óvenjumikinn áhuga á íslenskri knattspyrnu. Eftir að Rúrik lagði atvinnuskóna á hilluna hefur hann haslað sér völl í skemmtanabransanum, fyrirsætustörfum og viðskiptum og nýtur enn mikilla vinsælda erlendis.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗









