Instagram: Rífandi stemning á ferð og flugi
Instagram iðaði af lífi þessa vikuna þar sem kunnugleg andlit deildu brotum úr hversdagslífinu með fylgjendum sínum. Sumir héldu á vit ævintýranna, aðrir nutu góðra stunda með sínum nánustu og víða kenndi ýmissa grasa.
Aldrei betri!
Hlauparinn og áhrifavaldurinn Hekla Sif Magnúsdóttir hljóp hálfmaraþon um helgina og hafði aldrei verið betri.
Alvöru tekjur!
Tónlistarmaðurinn Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör, las um tekjuhæstu Íslendingana en hann er sjálfur á listanum yfir tekjuhátt tónlistarfólk.
Lét sig ekki vanta!
Pílatesdrottningin Sædís Lea Lúðvíksdóttir tók þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka og kláraði það með stæl ásamt vinkonu sinni.
Afmælisstelpa!
Áhrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir fagnaði afmælisdeginum með stæl í Grikklandi, á sundbol með köku. Hún lenti þó í því óhappi að fá gubbupest síðar um kvöldið.
„Ég átti æðislegan dag með mínum sem byrjaði svo vel, en endaði svo heldur óvænt með ælupest og tilheyrandi,“ skrifaði hún á samfélagsmiðla.
Kaliforníudraumurinn!
Áhrifavaldurinn og framkvæmdastjórinn Birgitta Líf Björnsdóttir deildi nokkrum myndum frá Kaliforníu í Bandaríkjunum með fylgjendum sínum en hún ferðaðist þangað fyrr í mánuðinum.
Styttist!
Það styttist í komu annars barns áhrifavaldanna Ástrósar Traustadóttur og Adams Helgasonar. Þau tóku fallegar myndir í síðdegissólinni.
Afmælisstelpa!
Fyrirsætan Íris Freyja Salguero fagnaði afmælisdeginum á dögunum. Hún á von á sínu öðru barni með kærasta sínum Agli Halldórssyni.
Ágúst!
Kristín Pétursdóttir deildi nokkrum skemmtilegum myndum frá ágústmánuði sem einkenndist af flottum fötum og fjölskyldustundum.
Ánægð með Ísland
Nýjasta tengdadóttir Íslands, Bruna Ludmila, birti færslu á dögunum þar sem hún sýndi frá því sem hún hefur brallað hér á landi að undanförnu. Þar kenndi ýmissa grasa.
Fór á barinn í London
Förðunarfræðingurinn og athafnakonan Heiðdís Rós Reynisdóttir skellti sér til Lundúna í vikunni þar sem hún naut borgarlífsins og kíkti meðal annars á barinn.
Hjartað fullt
Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir birti færslu á dögunum þar sem hún sýndi frá því hvað á daga hennar hefur drifið að undanförnu og skrifaði við að hjartað væri fullt.
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗