Þorleifur og Erna Mist trúlofuð

Erna Mist sagði já þegar Þorleifur bar upp bónorðið.

Erna Mist sagði já þegar Þorleifur bar upp bónorðið. Skjáskot/Instagram

Leikstjórinn Þorleifur Örn Arnarsson og listakonan Erna Mist Yamagata eru trúlofuð.

Þorleifur greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum í gærkvöldi og birti mynd af höndum þeirra þar sem glittir í hringana.

„Hún sagði já,“ skrifaði hann einfaldlega við myndina.

Parið hefur verið saman frá því í byrjun árs 2024 og hefur ýmislegt drifið á daga þess síðan þá. Þau eignuðust dótturina Þórhildi Nótt í janúar 2025 og í lok júní á þessu ári bættist sonur í fjölskylduna. Drengurinn fæddist í Zürich í Sviss, þar sem þau Þorleifur og Erna Mist höfðu unnið saman að uppsetningu óperunnar Tannhäuser eftir Wagner.

Kynni þeirra má rekja til Morgunblaðsins

Þorleifur og Erna Mist sögðu frá því í viðtali við Morgunblaðið árið 2024 að kynni þeirra mætti að vissu leyti rekja til blaðsins.

Þorleifur rakst þar á grein eftir Ernu, hreifst af skrifum hennar og fann hana í kjölfarið á Instagram. Síðar hófu þau að skrifast á og úr varð ástarsamband.

Nú hefur parið því tekið næsta skref og sett upp hring.

Smartland óskar turtildúfunum innilega til hamingju með gleðitíðindin!

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅