Leiðir Valgeirs og Camillu Rutar skilur

Camilla Rut staðfestir í samtali við Smartland að leiðir hennar og Valgeirs Gunnlaugssonar hafi skilið. mbl.is/Birta Margrét

Camilla Rut Arnarsdóttir, markaðsstjóri Hopp, og unnusti hennar, veitingamaðurinn Valgeir Gunnlaugsson, annar eigenda Pizza 107, eru farin hvort í sína áttina.

„Já, það passar,“ segir Camilla aðspurð hvort leiðir þeirra hafi skilið.

Camilla hefur nú flutt búferlum að Hellishólum ásamt sonum sínum og segir samband hennar og Valgeirs áfram vera gott þrátt fyrir sambandsslitin.

„Að sjálfsögðu. Við erum bestu mátar og stundum er betra að vera vinir. Við heyrumst alveg reglulega og það er mikill samgangur, þannig að það er engin fjandsemi,“ segir hún í samtali við Smartland.

Hún ætlar að verja næsta árinu í sveitinni og hjálpa afa sínum.

„Ég er komin í paradís að hjálpa afa mínum aðeins hérna, allavega næsta árið. Svona er bara lífið stundum,“ segir hún.

Æskudraumurinn að prófa sveitina

Camilla segir lengi hafa blundað í sér að prófa að búa í sveitinni og að tækifærið hafi því komið á góðum tíma.

„Við ætlum allavega að byrja á því að vera hér í ár. Það hefur verið æskudraumur hjá mér að prófa að búa hérna. Þetta hefur verið á bak við eyrað á mér síðan ég var unglingur. Ég vann hér öll sumur og hef verið mikið hér um helgar,“ segir hún og bætir við:

„Svo bauðst þetta tækifæri til að máta sveitina við mig, eins og maður segir.“

Camilla og synir hennar hafa nú verið á Hellishólum í tvær vikur og segir hún breytinguna hafa farið vel af stað.

„Þetta er algjör blessun. Það er ennþá veðursæld og við erum með golfvöllinn í bakgarðinum, þannig að við erum bara í toppmálum.“

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅