Birta Líf og Gunnar Patrik slíta 12 ára sambandi

Birta Líf og Gunnar Patrik höfðu verið saman frá árinu 2014. Skjáskot/Instagram

Hlaðvarpsstjarnan Birta Líf Ólafsdóttir og fasteignasalinn Gunnar Patrik Sigurðsson hafa slitið samvistum eftir rúmlega tólf ára samband. Birta staðfesti sambandsslitin í samtali við Smartland.

„Já, ég get staðfest þetta,“ segir Birta aðspurð.

Birta og Gunnar hófu samband sumarið 2014 eftir að hafa kynnst í gegnum sameiginlega vini. Þau eiga saman tvær dætur, Emblu Líf, sem fæddist árið 2021, og Elísabetu Evu, sem kom í heiminn í mars í fyrra.

Á þeim tólf árum sem þau voru saman hefur ýmislegt drifið á daga þeirra. Birta og Gunnar fluttu meðal annars saman til Englands þar sem Birta lagði stund á markaðsfræði við Coventry University og útskrifaðist þaðan árið 2019.

Hún hefur undanfarin ár verið áberandi á samfélagsmiðlum og stýrt hlaðvarpinu Teboðið ásamt Sunnevu Eir Einarsdóttur frá árinu 2020.

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅