Camilla Rut sigrar heiminn á Suðurlandi

Vikan var viðburðarrík á Smartlandi. Marta María Winkel, fréttastjóri dægurmála mbl.is og höfundur Smartlands Mörtu Maríu, fór yfir fréttir vikunnar og tók saman allt það helsta.

Elsku Dolly

Þær hræðilegu fréttir bárust í vikunni að Dolly Parton væri látin. Þessi stjarna heillaði heimsbyggðina upp úr skónum. Marta María ákvað að klæðast blússu sem Dolly Parton gerði fyrir fatamerkið Good American til minningar um fallna vinkonu. 

Ef það er eitthvað sem allir Dolly Parton aðdáendur ættu að gera þá er það það að heimsækja Nashville í Bandríkjunum en hægt er að fljúga þangað beint.

Dolly Parton.

Dolly Parton. AFP/Robyn Beck

Ásdís Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, Marta María Winkel og Svanhildur Hólm Valsdóttir, sendiherra Íslands í Washington, fóru í verslunina Ariat í Nashville og keyptu kúrekastígvél Morgunblaðið/Árni Sæberg

Ofurgellur settust á skólabekk

Saga Garðarsdóttir og Katrín Halldóra Sigurðardóttir eru farnar að læra ritlist í Háskóla Íslands. 

Saga Garðarsdóttir og Katrín Halldóra Sigurðardóttir eru sestar á skólabekk.

Seldi lúxusíbúðina

Högni Egilsson nennir ekkert að húka á Kolagötu í Reykjavík þegar hann getur sigrað heiminn í Los Angeles í Bandaríkjunum. 

Snæfríður Ingvarsdóttir og Högni Egilsson búa í Los Angeles.

Snæfríður Ingvarsdóttir og Högni Egilsson búa í Los Angeles. AFP

Fátt jafnast á við Pucci

Sunneva Eir Einarsdóttir fagnaði 30 ára afmæli í Pucci-kjól! Hversu mikil drolla er hægt að vera? 

Sunneva Eir Einarsdóttir fagnaði 30 ára afmæli í Pucci kjól.

Sunneva Eir Einarsdóttir fagnaði 30 ára afmæli í Pucci kjól. Samsett mynd

Sigrar heiminn á Suðurlandi 

Camilla Rut og Valgeir eru farin hvort í sína áttina og hún er að sigra heiminn á Suðurlandi um þessar mundir. 

Valgeir og Camilla Rut eru farin hvort í sína áttina.

Valgeir og Camilla Rut eru farin hvort í sína áttina. mbl.is/Birta Margrét

Viðtalið sem þú mátt ekki missa af

Ef þú varst ekki búin að hlusta á viðtal Mörtu Maríu við Sigurlín Ívarsdóttur prest þá þarftu að hlusta á það! 

Góða helgi! 

Sigurlín Ívarsdóttir er gestur í hlaðvarpsþættinum Marta María býður heim.

Sigurlín Ívarsdóttir er gestur í hlaðvarpsþættinum Marta María býður heim. mbl.is/Marta María

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅