Eftirsóttustu einhleypu skvísur landsins

Camilla Rut Arnarsdóttir, Guðríður Erla Torfadóttir, Telma Fanney Magnúsdóttir og Birta Líf Þórudóttir eru eftirsóttar. Samsett mynd

Haustið er að skella á og þá er kominn tími til að fara í samband. Það er ekkert betra á haustin en að kúra undir teppi, kveikja á kertum og að horfa á Netflix með kæró. Það er ekkert gaman að vera á djamminu þegar Tenerife-brúnkan fer að dofna og konur þurfa að skipta sandölum út fyrir bomsur.

Það eru fjölmargar konur á lausu eins og sjá má á lista yfir þær konur sem eru einhleypar á Smartlandi. 

Guðríður Erla Torfadóttir 

Einkaþjálfarinn Guðríður Erla Torfadóttir varð heimsfræg á Íslandi þegar hún þjálfaði keppendur í Biggest Looser Ísland en þættirnir voru sýndir hérlendis í Sjónvarpi Símans. Þar var hún grjóthörð og gaf engan afslátt. Hún gefur heldur engan afslátt þegar kemur að ástinni og nú er hún frjáls eins og fuglinn. 

Guðríður Erla Torfadóttir.

Guðríður Erla Torfadóttir.

Birta Líf Þórudóttir

Birta Líf Þórudóttir er áhrifavaldur og stjórnar hlaðvarpinu Teboðinu með vinkonu sinni Sunnevu Eir Einarsdóttur. Birta hætti nýlega með sambýlismanni sínum og barnsföður. Birta hefur gert það gott í hlaðvarpsheiminum en í tekjublaði Frjálsrar verslunar voru mánaðarlaun hennar 1.126.00 kr.

Hlaðvarpsstjarnan Birta Líf Þórudóttir.

Hlaðvarpsstjarnan Birta Líf Þórudóttir. Ljósmynd/Aðsend

Camilla Rut Arnarsdóttir 

Camilla Rut var einn fyrsti áhrifavaldurinn á Íslandi þegar Snapchat byrjaði en nú er hún markaðsstjóri Hopp. Camilla Rut hætti nýlega með Valgeiri Gunnlaugssyni veitingamanni og ákvað hún í kjölfarið að gera breytingar á lífi sínu og flytja út á land og lifa rólegra lífi. 

Camilla Rut er flutt út á land.

Camilla Rut er flutt út á land. mbl.is/Birta Margrét

Nadía Atladóttir

Nadía Atladóttir, knattspyrnukona og lögfræðingur, er á lausu. Nadía er alin upp í Hafnarfirði og er systir Patriks Altasonar tónlistarmanns eða Prettyboitjokko. Fjölskylduboðin eru örugglega ekki leiðinleg og örugglega alltaf gott súkkulaði í eftirrétt. Nadía setti nýlega húsið sitt á sölu. 

Dorrit Moussaieff

Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrú og demantadrottning, er einhleyp eftir að hjónabandi hennar og Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta Íslands lauk. Dorrit er ein skemmtilegasta kona sem til er, finnst best að flakka um heiminn og lifa lífinu lifandi. Aldur er bara tala þegar Dorrit er annars vegar. Hún tjáir sig með tjáknum eins og unga fólkið og er yfirleitt að leika sér í sjónum eða klappa krúttlegum dýrum. 

Dorrit Moussaieff er einstök kona.

Dorrit Moussaieff er einstök kona. mbl.is/Eyþór

Lovísa Ólafsdóttir 

Lovísa er viðskiptafræðingur og fjárfestir sem hefur komið víða við á sínum ferli. Nú stundar hún sálfræðinám og nýtir hverja mínútu til þess að gera eitthvað skemmtilegt. Ef hún er ekki úti í á að veiða þá er hún á skíðum eða í Kaupmannahöfn þar sem hún er með annan fótinn. 

Lovísa Ólafsdóttir viðskiptafræðingur.

Lovísa Ólafsdóttir viðskiptafræðingur.

Þorbjörg Hafsteinsdóttir 

Hún er hjúkrunarfræðingur og næringarþerapisti sem hefur gert gott mót í sínu fagi. Þorbjörg geislar af heilbrigði. Hún lyftir lóðum og borðar heilnæman mat. En hún er ein af þeim sem fylgir hjartanu og er alltaf til í að gera lífið skemmtilegra. Þorbjörg skrifar reglulega pistla inn á Smartland um heilsu. 

Þorbjörg Hafsteinsdóttir geislar af heilbrigði.

Þorbjörg Hafsteinsdóttir geislar af heilbrigði.

Helga Hlín Hákonardóttir 

Helga Hlín Hákonardóttir er eigandi ráðgjafarfyrirtækisins Strategíu og stjórnarmaður í nokkrum stjórnum. Hún á nokkra heimsmeistara- og Evrópumeistaratitla í ólympískum lyftingum og fjölda Íslandsmeta. Helga Hlín elskar að fara ótroðnar slóðir í lífinu og orðið „hefðbundið“ er neikvætt í orðabókinni hennar. 

Helga Hlín Hákonardóttir er á lausu.

Helga Hlín Hákonardóttir er á lausu. mbl.is/Birta Margrét

Berta Sigríðardóttir 

Leikkonan Berta Sigríðardóttir er á lausu en hún hefur meðal annars skrifað pistla í Morgunblaðið og á Smartland um það hvernig er að vera einhleyp á Íslandi núna. „Sem 27 ára einhleyp kona er ég orðin eins og sjaldgæf fuglategund á Íslandi - tegund í bráðri útrýmingarhættu,“ skrifaði hin hressa Berta í Morgunblaðið í fyrra. 

Berta Sigríðardóttir skrifar skemmtilega pistla um hvernig er að vera á lausu.

Telma Fanney Magnúsdóttir

Það er ekkert sem Telma Fanney Magnúsdóttir getur ekki gert og virðist hún vera með fleiri klukkutíma í sólhringnum en margir aðrir. Telma Fanney sem er meistaranemi í klínískri sálfræði er líka búin með grunnnám í lögfræði og hefur verið vinsæll einkaþjálfari. Telma er ein glæsilegasta kona landsins og var lengi vel trúlofuð tónlistarmanninum Jökli Júlíussyni sem er oft kenndur við Kaleo. 

Telma Fanney hugsar mikið um andlega heilsu.

Telma Fanney hugsar mikið um andlega heilsu. Skjáskot/Instagram

Hildur Skúladóttir

Hildur er sálfræðingur og er laus og liðug. Hún á tvö börn með fyrrverandi sambýlismanni sínum, leikaranum Aroni „mola“ Ólafssyni. Hildur er bæði klár og sjarmerandi kona og heillar alla upp úr skónum hvar sem hún kemur. 

Hildur Skúladóttir er glæsileg.

Hildur Skúladóttir er glæsileg. Skjáskot/Instagram

Anna María Gísladóttir 

Anna María er lögmaður hjá Sögu lögfræðistofu en hún starfaði áður hjá CATO lögmönnum. Hún er formaður félags sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi og á þrjú börn. Hún elskar að lifa lífinu; ferðast, spila golf og halda veislur. Það er alltaf stuð í kringum Önnu Maríu sem kýs að vera manneskjan á bak við tjöldin - ekki í sviðsljósinu.

Anna María Gísladóttir lögmaður á fjölmörg áhugamál.

Anna María Gísladóttir lögmaður á fjölmörg áhugamál.

Silja Rán Arnarsdóttir

Silja Rán sem er lögfræðingur og saksóknari er einhleyp kona. Hún er ekki bara klár heldur ein skemmtilegasta einhleypa kona landsins. Það kemur heldur ekki á óvart að þar sem er fjör þar er Silja yfirleitt mætt. Hún var til dæmis mætt til Tenerife þegar snyrtifræðingurinn Guðríður Jónsdóttir hélt upp á 35 ára afmælið sitt á eyjunni fögru í byrjun árs. 

Silja Rán Arnarsdóttir er alltaf hress.

Silja Rán Arnarsdóttir er alltaf hress. mbl.is/Kristófer Liljar

Unnur Borg Ólafsdóttir 

Unnur Borg, tónlistarkona og TikTok-stjarna, er á bullandi lausu. Hún er rísandi stjarna sem vakti meðal annars athygli í sumar fyrir að borða á Subway í tuttugu daga í röð. Lagið hennar Barnsfaðir var lag sumarsins 2026 og nú er plata á leiðinni. 

Unnur Borg er á lausu.

Unnur Borg er á lausu. Samsett mynd/Skjáskot/TIktok

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅