„Ég stranglega neita fyrir þetta“

Kolbrún Aðalsteinsdóttir, þá umsjónarmaður Smirnoff-keppninnar á Íslandi, leiðbeinir keppendum og fyrirsætum baksviðs árið 1998. Ljósmynd/Halldór Kolbeins

Kolbrún Aðalsteinsdóttir, eigandi Iceland Fashion Week, hafnar alfarið ásökunum sem komið hafa fram í umræðu á Facebook um starfshætti hátíðarinnar og framkomu gagnvart fyrirsætum.

Umræðan hófst með færslu í Facebook-hópnum Beauty Tips þar sem fólk er varað við því að taka þátt í Iceland Fashion Week.

Þar er meðal annars fullyrt að fyrirsætur fái ekki greitt fyrir vinnu sína, að þeim sé gert að taka þátt í þrifum fyrir og eftir sýningar og að loforð um umfjöllun og sýnileika séu ekki efnd.

Þegar þetta er skrifað hafa 26 athugasemdir verið skrifaðar við færsluna og í nokkrum þeirra lýsa einstaklingar eigin reynslu af hátíðinni eða störfum fyrir Kolbrúnu.

Frásagnirnar ná yfir meira en tvo áratugi og lúta meðal annars að ógreiddri vinnu, óuppgerðum reikningum, aðbúnaði og framkomu gagnvart fyrirsætum og öðru starfsfólki.

„Ekki eitt rétt í þessu“

Í samtali við Smartland kveðst Kolbrún ekki hafa vitað af færslunni þegar leitað var viðbragða hennar. Þegar helstu ásakanirnar voru bornar undir hana hafnaði hún þeim alfarið.

„Það er ekki eitt rétt í þessu sem þú ert að segja,“ segir Kolbrún.

Aðspurð hvort hún vilji svara þeim ásökunum sem fyrrverandi fyrirsætur og aðrir þátttakendur hafa sett fram segist hún stranglega neita þeim.

„Ég stranglega neita fyrir þetta. Ég veit að allar fyrirsæturnar eru ánægðar hjá okkur. Það er ofsalega mikil ásókn í fyrirsætustörfin og hér er allt mjög vel skipulagt.“

Hún segir æfingar fyrir hátíðina meðal annars hafa farið fram í Hannesarholti og að mæting fyrirsætanna hafi verið góð.

„Módelin hafa verið mjög ánægð og það hefur verið full mæting á allar æfingar. Sýningin er í dag. Ég er undrandi, ef ég á að segja eins og er, því ef öll módelin mæta á sýninguna þá finnst mér þetta vera tómt tal. Það er leiðinlegt ef einhver er að reyna eitthvað svona.“

Segist alltaf ganga síðust frá

Í upphaflegu færslunni er meðal annars fullyrt að fyrirsætum sé gert að þrífa fyrir og eftir sýningar. Kolbrún segist alls ekki kannast við það.

„Ég hef aldrei heyrt þetta. Við vorum með viðburð á bát í gær og vorum þar fram eftir kvöldi. Það var enginn eftir til þess að þrífa eða neitt. Við vorum með 15 pizzur og ég gekk síðust frá borði, eins og ég geri alltaf á öllum mínum sýningum. Það er enginn sem þrífur eitt eða neitt.“

Iceland Fashion Week fer fram í Garðheimum í dag og hefst dagskráin klukkan 17. Kolbrún segir starfsfólk hafa lagt mikið á sig við undirbúning sýningarinnar.

„Núna erum við í Garðheimum á þessum dásamlega stað með dásamlegu starfsfólki sem hefur unnið hart að þessari sýningu. Þetta er einhver óþroskuð manneskja úti í bæ sem er að rugla. Ég hygg að það sé fullt af fyrirsætum sem verða mjög óhressar með þetta.“

Eldri ásakanir einnig rifjaðar upp

Í athugasemdum við færsluna hafa fleiri stigið fram og lýst reynslu sinni. Nokkrir segjast ekki hafa fengið greitt fyrir vinnu sem þeir unnu í tengslum við hátíðina eða önnur verkefni. Einn einstaklingur segist enn eiga inni tugi þúsunda króna vegna gistingar erlendra fyrirsæta og aðrir segja förðunarfræðinga og annað starfsfólk hafa unnið án greiðslu.

Þá lýsa tvær konur reynslu sinni sem ungar fyrirsætur fyrir meira en tveimur áratugum og segja Kolbrúnu hafa gert athugasemdir við líkamsþyngd þeirra. Báðar lýsa því jafnframt að hún hafi klipið eða tekið um líkama þeirra á meðan rætt var um holdafar þeirra.

Ein fyrrverandi fyrirsæta segir einnig frá því að erlendir hönnuðir hafi fyrir um 15 árum neitað að taka þátt í sýningu vegna þess sem hún lýsir sem lélegum aðbúnaði. Að hennar sögn hafi starfsfólk, fyrirsætur, förðunarfræðingar, hárgreiðslufólk og hönnuðir í kjölfarið yfirgefið verkefnið og haldið eigin sýningu.

Hefur aðeins góða reynslu

Sóldís Vala Ívarsdóttir, sem hefur tekið þátt sem fyrirsæta á Iceland Fashion Week bæði í fyrra og í ár, segist hins vegar hafa góða reynslu af hátíðinni.

Hún segist aldrei hafa verið beðin um að þrífa eftir sýningar, annað en að ganga frá eigin munum, og að frá upphafi hafi legið skýrt fyrir að fyrirsæturnar fengju ekki greitt fyrir þátttökuna.

„Það hefur alveg verið skýrt frá byrjun að við erum ekki að fá greitt og ég er í þessu út frá áhugamáli,“ segir Sóldís.

Hún segir jafnframt vel hafa verið hugsað um fyrirsæturnar, bæði í fyrra og í ár, og að þær hafi fengið stuðning og aðstoð, meðal annars vegna kvíða og stress fyrir sviðsframkomu.

„Heildarmyndin fyrir mér er mjög góð og ég veit að mjög margir eru ánægðir.“

„Glymur hæst í tómri tunnu“

Kolbrún segir alla sem koma að Iceland Fashion Week leggja vinnu sína fram í þágu verkefnisins og að hátíðin sé ekki rekin með það að markmiði að skila hagnaði til samtakanna.

„Mér er mjög kær einn málsháttur: Glymur hæst í tómri tunnu. Mér finnst leiðinlegt að það sé til fólk sem er að eyðileggja fyrir öðrum því þarna er heill her af dásamlegum ungum fyrirsætum og meira að segja mömmur þeirra eru með okkur. Þær voru með okkur í gær á bátnum.“

Hún segir þá sem vinni að verkefninu gefa vinnu sína.

„Ég verð að segja eins og er að listir eru fyrir alla. Allir sem vinna við verkefnið, þar með talið ég, gefa alla vinnuna. Við seljum ekki inn og tökum ekki við neinu sem er einhver verðmæti. Þarna í dag fara ömmur og afar og allir sem leggja eitthvað á vogarskálarnar í þessari vinnu gera það til styrktar íslenskum og erlendum hönnuðum. Það fer ekki króna í þessi samtök“

内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅