Draumabrúðkaup Jann Arden og Þórdísar Elvu
Rithöfundurinn og baráttukonan Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og kanadíska söngkonan Jann Arden gengu í hjónaband 15. ágúst síðastliðinn við einstaklega ævintýralegar aðstæður á landareign Arden rétt utan við Calgary í Kanada.
Alls fögnuðu 106 gestir með brúðhjónunum, þar á meðal á fjórða tug Íslendinga, en dagurinn var langt frá því að vera hefðbundið brúðkaup. Þær Þórdís Elva og Jann ákváðu að skapa litríkan sirkusheim þar sem stultufólk, strengjakvartett, leikir, matarvagnar og dans fram eftir kvöldi settu svip sinn á stóra daginn.
Í samtali við Smartland segir Þórdís Elva frá því hvernig ástin kviknaði, óvenjulegu bónorði undir tunglsljósi, brúðkaupsdeginum, klæðnaði þeirra beggja og þeim augnablikum sem standa helst upp úr eftir stóra daginn.
Þórdís Elva og Jann ásamt skemmtikraftinum Chelsea Handler, sem er góð vinkona þeirra og var ein af fyrstu manneskjunum sem þær bundust vináttuböndum við eftir að þær urðu par. Ljósmynd/Dan O’Donoghue
Hvernig lágu leiðir ykkar Jann fyrst saman og hvenær kviknaði neistinn á milli ykkar?
„Við kynntumst í apríl 2025 í rithöfundabúðunum Iceland Writers Retreat sem Eliza Reid fyrrum forsetafrú stofnaði, en þar kenndum við báðar námskeið í ritlist. Mér fannst Jann strax heillandi og skemmtileg, en ekkert gerðist á milli okkar nema að við skiptumst á símanúmerum. Daginn eftir að Iceland Writers Retreat lauk skrifaði Jann mér einlæg skilaboð sem ég svaraði umsvifalaust og eftir það var ekki aftur snúið, við vorum límdar við símaskjáinn næstu vikurnar og sáum ekki sólina fyrir hvor annarri. Hún var á tónleikaferðalagi og bauð mér á tónleikana sína í Toronto í júní, og við höfum verið óaðskiljanlegar síðan þá,“ segir Þórdís.
Hvernig fór bónorðið fram um áramótin og kom svarið strax?
„Við ræddum snemma um að gifta okkur, aðallega af rómantískum ástæðum en líka af öryggisástæðum því við erum með sitthvort ríkisfangið og vinnum í sitthvorri heimsálfunni. Jann var búin að ýja að því um nokkurt skeið að hún myndi biðja mín, en ég ákvað að vera fyrri til. Fyrst ætlaði ég að tæla hana út á svalir með fallegri tónlist, þar sem hún sæi hjarta sem ég hefði búið til úr ljósaseríu á grasflötinni fyrir neðan, en sú áætlun fór í vaskinn þegar ég komst að því að hún er með hreyfiskynjara og myndavélar um alla lóðina, svo það var útilokað að laumupúkast með það!
Kolbrún Birna Árdal, Aðalbjörg Marta Agnarsdóttir, María Stefánsdóttir og Ósk Gunnlaugsdóttir. Ljósmynd/Dan O’Donoghue
Ég endaði með að skálda upp afsökun fyrir að þurfa að teyma hana þvert yfir lóðina á miðnætti út í dimmt skúmaskot á bak við grenitré, sem var langt í frá eins glæsilegt og ég hafði gert mér í hugarlund. En einmitt þegar ég dró upp hringinn reis tunglið upp yfir trjátoppana og baðaði allt í silfurlitri birtu, og við urðum orðlausar þegar við sáum fullvaxinn ref sitja í námunda við okkur og fylgjast þögull með athöfninni. Móðir náttúra var greinilega með okkur í liði og stundin var töfrandi rómantísk. Jann sagði umsvifalaust já og svo vönguðum við inni í ljósahjartanu undir tunglinu,“ segir Þórdís.
Eliza Reid, fyrrverandi forsetafrú, stillti sér upp með einum af Big Love-boltunum sem listakonan Wendy Williams-Watt gaf brúðhjónunum í brúðargjöf. Ljósmynd/Aðsend
Hvar giftuð þið ykkur og hvers vegna varð sá staður fyrir valinu?
„Við giftum okkur á sama stað, á landareign Jann í Kanada, rétt fyrir utan borgina Calgary. Okkur fannst aldrei neitt annað koma til greina eftir þessa mögnuðu bónorðsstund. Landið er stórt og skógi vaxið, hávaxin grenitré teygja sig til himins og á liðast í gegnum skóginn. Ýmis villt dýr eru daglegir gestir og brúðkaupsfylgdarliðið mitt fékk að sjá dádýr, íkorna, skunka, refi og daginn eftir veisluna mætti meira að segja björn með tvo húna! Þá stóð okkur ekki á sama!“ segir Þórdís.
Bruce Allen var á meðal gesta en hann er goðsagnakenndur umboðsmaður sem uppgötvaði Bryan Adams og er umboðsmaður Jann. Ljósmynd/Dan O’Donoghue
Voruð þið með ákveðna hugmynd um hvernig þið vilduð að brúðkaupið yrði og hvaða stemningu þið vilduð skapa?
„Já, við ákváðum snemma að við vildum að brúðkaupið yrði skemmtileg og óformleg stund þar sem fólk yrði hvatt til að leika sér og hafa gaman. Það ól af sér hugmyndina um að búa til eins konar skemmtigarð, sem endaði að lokum í sirkus-konsepti. Sirkúsinn var öldum saman griðastaður fyrir fólk sem flúði hefðbundið líf, svo sem listamenn, fólk sem passaði ekki inn í samfélagsleg box, draumórafólk, konur sem höfnuðu hefðbundnum kynhlutverkum og þar fram eftir götunum. Það var mjög gaman að vinna með þetta litríka, leikræna konsept og á stóra deginum mátti sjá prúðbúna listamenn ganga á stultum um lóðina, risavaxna bolta á víð og dreif um grasið, gamaldags leiki eins og pokakast, krikket og fleira. Gestirnir létu ekki á sér standa og skoruðu á hvort annað í leiki á meðan strengjakvartett spilaði hittara eftir Coldplay og Beyoncé. Garðurinn breyttist í algeran draumaheim þennan sólríka eftirmiðdag,“ segir hún.
Hvernig var brúðkaupsdagurinn frá morgni til kvölds?
„Veislan hófst klukkan þrjú, þá hóf strengjakvartettinn að spila og stultufólkið að heilla viðstadda, á meðan krabbaleggir, risarækjur og ostrur voru bornar fram með freyðivíni og úrvali óáfengra drykkja. Rúmri klukkustund síðar gengum við Jann út úr húsinu og niður eftir litlum stíg að lystihýsi sem búið var að skreyta með blómum og flauelsklæðum, en gestirnir sátu á bekkjum allt í kring umluktir háum trjám.
Börnin mín fengu öll hlutverk í athöfninni, Laufey dóttir mín var blómastúlka, Svanur sonur minn bar slóðann af pilsinu mínu og Hafliði frumburðurinn minn var hringaberi. Tvær af bestu vinkonum okkar Jann, Brynhildur Björnsdóttir og Lisa Almond, stýrðu athöfninni og gerðu hana bæði undurfagra og persónulega. Eftir það létum við brúðirnar okkur hverfa stundarkorn með ljósmyndaranum okkar á meðan gestirnir héldu áfram að leika sér og blanda geði. Þá tók veislutjaldið við með líbönskum mat, þar sem ástvinir héldu ógleymanlegar ræður sem innihéldu hárrétta blöndu af fyndnum og hjartnæmum sögum.
Átta ára gömlu tvíburarnir mínir vildu gleðja Jann, tóku eitt af frægustu lögum hennar, sem heitir Good Mother, og breyttu textanum. Þau bættu við forskeytinu „step“ og sungu I’ve got a good step-mother af svo mikilli innlifun að það grætti Jann og meirihluta viðstaddra. Þá fluttu bróðir minn og mágkona, Þórður Gunnar Þorvaldsson og Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir, ógleymanlega útgáfu af Þúsund sinnum segðu já.
Veðrið hafði verið með besta móti allan daginn, 22 gráður og sól, en akkúrat á meðan á borðhaldinu stóð byrjaði að rigna. Þegar við Jann skárum brúðartertuna ómaði hávær þruma, sem setti dramatískan svip á augnablikið!
Svo hvarf regnið jafn fyrirvaralaust og það hófst. Eftir stóð tvöfaldur regnbogi, sem var einstaklega fallegur og táknrænn fyrir þennan dýrðardag.
Klukkan níu um kvöldið mættu matartrukkar á svæðið og buðu upp á pylsur, ís og kandífloss fyrir þau sem voru ennþá svöng. Plötusnúður sá til þess að dansinn dunaði fram yfir sólsetur, en þá kveiktum við eld, hjúfruðum okkur saman í kringum bálið, grilluðum sykurpúða og spjölluðum undir stjörnunum. Gestir voru leystir út með gjafapokum sem ég er stolt af að sameina það besta frá bæði Íslandi og Kanada, en þar var að finna dásamlega C-vítamín kremið frá LovaIceland, rúnasteina með heillagöldrum formæðra minna, auk kanadísks hunangs frá fjallshlíðum Rocky Mountains,“ segir Þórdís.
Þórdís Elva var glæsileg í óhefðbundnum brúðarklæðnaði, í buxum, korsetti og tjullyfirpilsi. Frá vinstri Laufey, Hafliði, Svanur, Aðalbjörg, Þórdís Elva, Þorvaldur, Sunneva, Víðir,Gunnar og Gunnhildur Kjerúlf. Ljósmynd/Dan O’Donoghue
Hversu fjölmennt var brúðkaupið og hverjir fögnuðu deginum með ykkur?
„106 gestir mættu til leiks, þar á meðal á fjórða tug íslenskra ástvina og vandamanna sem mér þótti einstaklega vænt um að hafi lagt land undir fót til að fagna með okkur. Eliza Reid lét sig að sjálfsögðu ekki vanta, enda á hún heiðurinn að því að hafa kynnt okkur hver fyrir annarri. Jann er söngkona og skemmtikraftur sem hefur verið áratugum saman í sviðsljósinu í Kanada og Bandaríkjunum, svo vinahópur hennar inniheldur ýmis þekkt andlit úr fjölmiðlum, skemmtana- og tónlistarbransanum.
Ein af fyrstu manneskjunum sem við bundumst vinaböndum eftir að við urðum par var skemmtikrafturinn Chelsea Handler, sem mætti hress til leiks. Þá er umboðsmaður Jann, Bruce Allen, lifandi goðsögn í bransanum en hann uppgötvaði meðal annars Bryan Adams.
Ég er fegin að ég var ekkert að pæla í því þegar ég dró upp míkrafón á dansgólfinu og söng „Everything I Do“ í karaoke fyrir Jann, ég hefði mögulega ekki lagt í það ef ég hefði verið meðvituð um að maðurinn sem gerði Bryan Adams frægan var á staðnum!“ segir Þórdís.
Gestir fengu gjafapoka með íslensku og kanadísku góðgæti, meðal annars húðkremi, rúnasteinum og hunangi. Ljósmynd/Aðsend
Hvernig valdir þú brúðarkjólinn og hvað heillaði þig við hann?
„Ég var ekki í brúðarkjól, mig langaði að blanda saman kvenlegum og karlmannlegum elementum og endaði á að vera í buxum og klæðast svokölluðu yfirpilsi (e. overskirt) úr tjulli yfir. Ég lét sérsauma korsett á mig og var í hælaskóm með breiðum hæl svo ég myndi ekki sökkva ofan í grasflötina, það hefði verið verra!
Ég var hissa á hvað mér leið vel, ég þurfti ekki að skipta um föt þrátt fyrir tilþrif á dansgólfinu og entist í brúðarklæðnaðinum til miðnættis!
Hvorki ég né Jann hefðum verið jafn vel til hafðar né jafn öruggar á dansgólfinu ef hárgreiðslukonan og dansmeistarinn Bára Hlín á hárgreiðslustofunni Wink hefði ekki flogið út til að hafa hendur í hári okkar og leiðbeina okkur um fyrsta dansinn. Það er ómetanlegt að hafa svona þúsundþjalasmiði bak við tjöldin,“ segir hún.
Hverju valdi Jann að klæðast á brúðkaupsdaginn og hvað réð því vali?
„Jann vissi frá upphafi að hún vildi vera í skyrtukjól og byggði restina af klæðnaðinum upp í kringum hann. Hún hefur alltaf verið hrifin af því að klæðast töff og óhefðbundnum jökkum og fór hamförum í ýmsum vefverslunum síðustu mánuði fram að brúðkaupinu, oft langt fram á nætur. Þegar jakkinn sem hún klæddist á stóra deginum barst í pósti hafði hún ekki hugmynd um hvar eða hvenær hún hafði keypt hann, né hver hannaði hann.
Hello tímaritið kallaði hann „instantly iconic“, og við látum það duga. Að sönnum rokkstjörnusið klæddist hún Doc Martens stígvélum, enda leyfði grasflötin enga pinnahæla,“ segir Þórdís.
Dani Kind lék í Netflix seríunni Working Moms og Sarah Burke er þekktur framleiðandi. Ljósmynd/Dan O’Donoghue
Hvaða augnablik úr brúðkaupsdeginum stendur helst upp úr hjá þér eða ykkur?
„Brúðkaupsheitin sem Jann samdi til mín og frumsamið ljóð sem Ósk Gunnlaugsdóttir vinkona mín flutti smugu beint inn í hjartað á mér, þær eru frábærir pennar og það var ekki þurr hvarmur meðal gestanna.
Mér þótti líka vænt um þegar fyrsti dansinn okkar Jann var hálfnaður og önnur pör héldu út á dansgólfið og vönguðu við hlið okkar, ástin var alltumlykjandi og áþreifanleg. Dagurinn markaðist af hjartnæmum hamingjuóskum og tárvotum faðmlögum, það voru óteljandi augnablik sem ég hefði viljað frysta að eilífu,“ segir Þórdís.
Hvað tekur við hjá ykkur núna – er brúðkaupsferð á dagskrá eða einhver frekari fögnuður?
„Við erum báðar mjög uppteknar í september, hún er að syngja á tónleikum víða um Kanada og sjálf er ég að tala á ráðstefnum í Póllandi og Litáen, en í október ætlum við að verja viku í Edinborg að þræða kastalana, dást að haustlitadýrðinni og njóta þess að vera saman. Við getum ekki beðið!“ segir Þórdís að lokum.
Á fjórða tug Íslendinga lögðu leið sína til Kanada til að vera viðstaddir brúðkaupið. Ljósmynd/Aðsend
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og Jann Arden gengu í hjónaband 15. ágúst síðastliðinn í Kanada. Ljósmynd/Aðsend
内容来自 Mbl.is - Smartland - Frægð,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/67/35/1673540.jpg)




















