„Ég get dáið sáttur“

John Travolta á kvikmyndahátíðinni í Cannes í maí , þar sem hann kynnti kvikmynd sína Propeller One-Way Night Coach. Hann tileinkaði myndina meðal annars eiginkonu sinni, Kelly Preston, og syni þeirra, Jett, sem bæði eru látin. AFP/Sameer Al-Doumy

John Travolta segist geta dáið sáttur í þeirri vissu að þeim Kelly Preston, eiginkonu hans heitinni, hafi tekist vel til við uppeldi barnanna sinna þriggja.

„Það er erfitt að finna réttu orðin,“ sagði leikarinn í viðtali við fjölmiðla vestanhafs. Hann sagði börnin hafa farið fram úr öllu því sem hann hefði getað vonast eftir sem faðir.

„Ég er mjög stoltur af þeim.“

John Travolta og Kelly Preston á árum áður. Travolta segir þeim hjónum hafa tekist vel til við uppeldi barna sinna þriggja. AFP

Þau Travolta og Preston eignuðust dótturina Ellu Bleu, sem er 26 ára, og synina Jett og Benjamin. Jett lést árið 2009, þá 16 ára gamall. Benjamin er nú 15 ára.

Preston lést úr brjóstakrabbameini árið 2020, 57 ára að aldri.

Í október, á deginum sem Preston hefði orðið 64 ára, birti Travolta myndskeið af Ellu á Instagram. Þar má sjá hana ganga sýningarpallinn fyrir tískuhúsið Miu Miu í fyrsta sinn á tískuvikunni í París.

„Sjáðu litlu stelpuna þína núna, Kelly! Til hamingju með afmælið. Þú mátt vera svo stolt!“ skrifaði hann.


People

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab