Krónan opnar nýja verslun á Höfn
Krónan opnar nýja matvöruverslun á Höfn í Hornafirði á laugardag, 21. nóvember. Við opnunina verða til um 20 ný störf á svæðinu.
Að því er segir í tilkynningu er nú unnið hörðum höndum að því að gera allt klárt fyrir fyrstu viðskiptavinina.
Verslunin er staðsett í nýju húsnæði að Hafnarbraut 60A, á svæðinu við gömlu mjólkurstöðina, og verður sú 27. í röðinni hjá Krónunni og sú tíunda utan höfuðborgarsvæðisins. Verslunin er um 1.200 fermetrar að stærð og þar verður boðið upp á um 8.000 vörur, með sérstaka áherslu á ferskvöru, fjölbreytt úrval og hagstætt verð.
Meira val í daglegum innkaupum
Gert er ráð fyrir sjö stöðugildum í fullu starfi auk tólf til fjórtán hlutastarfa. Fjöldi verktaka og þjónustuaðila úr Hornafirði hefur jafnframt komið að uppbyggingu verslunarinnar, meðal annars smiðir, píparar, rafvirkjar og málarar. Þá hefur Krónan nýtt þjónustu fyrirtækja á svæðinu vegna flutninga, gistingar, ræstinga og annarrar þjónustu sem tengist framkvæmdunum, að því er segir í tilkynningunni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
