Ráðning á klámstjörnu setti allt á hliðina og samstarfinu slitið
Leicester City hefur slitið samstarfi við veðmálafyrirtækið BC Game eftir að fyrirtækið réð rússnesku klámstjörnuna Evu Elfie sem auglýsingafulltrúa.
BC Game hefur verið aðalstyrktaraðili Leicester frá árinu 2024 en ráðning Elfie fyrr í þessum mánuði vakti mikla reiði meðal stuðningsmanna félagsins.
Stuðningsmannasamtökin Foxes Trust gagnrýndu samstarfið harðlega og sögðu bæði fjárhættuspil og klám geta haft alvarleg áhrif á líf fólks, sérstaklega ungs fólks.
Leicester svo staðfesti í gær að samstarfinu hefði verið slitið eftir viðræður við fyrirtækið.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗