Séra Hjalti Þorkelsson er látinn

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 10:21

Séra Hjalti Þorkelsson. Mynd: Facebook-síða Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi.

Hjalti Þorkelsson prestur í Kaþólsku kirkjunni og fyrrum skólastjóri Landakotsskóla er látinn, 82 ára að aldri.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kaþólsku kirkjunni á Íslandi.

Þar segir að Hjalti hafi látið á sjúkrahúsinu á Akranesi þann 17. nóvember síðastliðinn. 

Hjalti fæddist á Hólmavík 21. desember 1943, og var sonur hjónanna Þorkels Hjaltasonar kennara og Sigríðar Tómasdóttur klæðskera. Hann stundaði nám í Kennaraskóla Íslands og hélt síðan til náms í Heidelberg í Þýskalandi en í tilkynningunni segir að þar hafi Hjalti kynnst Kaþólsku kirkjunni og í kjölfarið tekið kaþólska trú í munkaklaustrinu Neuburg. Hjalti fór í prestnám í Freiburg í Þýskalandi og Róm og tók prestvígslu 23. júlí 1983 í Dómkirkju Krists konungs í Landakoti. Hann þjónaði í Landakoti til ársins 1988 samhliða kennarastörfum í Landakotsskóla, tók svo við embætti sóknarprests Kaþólsku kirkjunnar í Hafnarfirði og sá þar m.a. um byggingu St. Jósefskirkju á Jófríðarstöðum og hafði forgöngu um upphaf safnaðarstarfs kirkjunnar á Suðurnesjum. 

Frá 1998 til 2005 var Hjalti skólastjóri Landakotsskóla í Reykjavík. Hann tók síðan við embætti sóknarprests Kaþólsku kirkjunnar á Akureyri þangað til að hann settist í helgan stein árið 2018 í Stykkishólmi og dvaldi þar til æviloka. Segir að lokum í tilkynningu kirkjunnar:

„Við minnumst séra Hjalta með hlýhug og þakklæti og biðjum fyrir honum. Við vottum aðstandendum hans samúð okkar.“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab