Krónan opnar á Höfn á laugardag – lokaundirbúningur í fullum gangi

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 10:26

Krónan í Höfn. Aðsend mynd.

Krónan opnar nýja matvöruverslun á Höfn í Hornafirði næstkomandi laugardag, 21. nóvember. Nú er unnið hörðum höndum að því að gera allt klárt fyrir fyrstu viðskiptavinina. Við opnunina verða til um 20 ný störf á svæðinu.

Verslunin er staðsett í nýju húsnæði að Hafnarbraut 60A, á svæðinu við gömlu mjólkurstöðina, og verður sú 27. í röðinni hjá Krónunni og sú tíunda utan höfuðborgarsvæðisins. Verslunin er um 1.200 fermetrar að stærð og þar verður boðið upp á um 8.000 vörur, með sérstaka áherslu á ferskvöru, fjölbreytt úrval og hagstætt verð.

„Við erum spennt að opna loksins dyrnar á Höfn og bjóða Hornfirðinga velkomna í Krónuna. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá vinnu undanfarinna mánaða verða að veruleika og við höfum fundið fyrir miklum áhuga og hlýjum móttökum frá heimamönnum. Við viljum ekki bara opna nýja matvöruverslun heldur verða virkur þátttakandi í samfélaginu, byggja upp góð tengsl við heimamenn og skoða tækifæri til samstarfs við framleiðendur á svæðinu. Nú teljum við niður dagana fram að opnun,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

Ný störf og samstarf við heimamenn

Við opnun verslunarinnar er gert ráð fyrir sjö stöðugildum í fullu starfi auk tólf til fjórtán hlutastarfa. Fjöldi verktaka og þjónustuaðila úr Hornafirði hefur jafnframt komið að uppbyggingu verslunarinnar, meðal annars smiðir, píparar, rafvirkjar og málarar. Þá hefur Krónan nýtt þjónustu fyrirtækja á svæðinu vegna flutninga, gistingar, ræstinga og annarrar þjónustu sem tengist framkvæmdunum.

Krónan hyggst einnig leggja áherslu á gott samstarf við nærsamfélagið og er opin fyrir samstarfi við matvælaframleiðendur í Hornafirði og nágrenni, með það að markmiði að vörur úr heimabyggð geti í framtíðinni ratað í hillur verslunarinnar.

„Það er gaman að sjá nýja verslun taka á sig mynd við gömlu mjólkurstöðina og hversu margir heimamenn hafa lagt hönd á plóg. Með opnuninni verða til ný störf og Hornfirðingar fá meira val í daglegum innkaupum. Það er gott að sjá fyrirtæki fjárfesta hér til framtíðar sem segir mikið um trú fólks á staðinn okkar.  Ég hlakka til að sjá hvaða tækifæri skapast til samstarfs við fólkið og fyrirtækin á svæðinu.“ segir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Hornafirði.

Fjölbreytt vöruúrval og nútímaleg verslun

Í nýju versluninni verður meðal annars rúmgóð ávaxta- og grænmetisdeild, fjölbreytt úrval ferskvara, brauðmetis og lífrænna vara. Þar verða einnig vörur frá meðal annars Sælkerabúðinni, Sætum syndum, Hraðlestinni, Matseðli og Blómstru. Einnig verður í boði að panta og sækja Tokyo Sushi í verslun alla föstudaga.

Verslunin verður búin nýjum sjálfsafgreiðslukössum sem Krónan hefur þróað og viðskiptavinir geta nýtt sér þjónustuna Skannað og skundað frá fyrsta degi. Þá verður sérstök aðstaða fyrir Snjallverslun Krónunnar sem verður í boði á nýju ári. Verslunin er jafnframt Svansvottuð líkt og aðrar verslanir Krónunnar.

Opnuninni verður fagnað með sérstökum opnunartilboðum og viðskiptavinir sem nýta sér Skannað og skundað í gegnum Krónuappið fá 5% afslátt af innkaupum sínum á opnunardaginn.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab