Hvergerðingur búinn að fá nóg af sóðaskap nágrannans - „Ég hef sýnt þolinmæði í rúmlega tvö ár“
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 10:30
Frá Hveragerði. Mynd: Ernir
Eigandi íbúðarhúss í Hveragerði, sem raunar er að reyna að selja húsið, lýsir yfir í bréfi til bæjaryfirvalda mikilli óánægju með skort á aðgerðum vegna umgengni á lóð næsta húss við hliðina. Segir eigandinn að nágranni hans hafi safnað á sína lóð bílhræjum og alls kyns drasli til viðbótar. Segir hinn ósátti eigandi að þetta ástand hafi varað síðustu tvö ár en hann alltaf fengið þau svör að ekkert sér hægt að gera í málinu. Segist eigandinn hins vegar ekki sætta sig við þetta ástand lengur og krefst aðgerða.
Bréf eigandans var tekið fyrir á fundi skipulags- og umhverfisnefndar Hveragerðis á þriðjudag.
Í bréfinu segir að í rúm tvö ár hafi staðið á lóð hússins við hliðina fimm gamlar, ryðgaðar og númerslausar bifreiðar. Þar að auki sé á milli þeirra og í kringum þær mikið magn af ýmiss konar dóti, meðal annars gömul dekk, felgur, bílahlutir og annað lauslegt drasl. Þetta hafi staðið óbreytt eða viðgengist í rúmlega tvö ár og sé orðið að eins konar geymslusvæði fyrir bílhræ og annað dót í miðju íbúðahverfi.
Segist hinn ósátti eigandi áður hafa kvartað við bæjaryfirvöld og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og fengið þau svör að þar sem bifreiðarnar og dótið séu innan einkalóðar sé lítið eða ekkert hægt að gera. Er eigandinn ekki sáttur við þessi svör:
„Ég tel þessi svör ófullnægjandi og óska eftir því að málið verði skoðað með tilliti til allra þeirra reglna sem kunna að eiga við, þar á meðal um umgengni, úrgang, skipulag og mögulega mengunarhættu. Það hlýtur að vera eðlileg krafa að íbúar í raðhúsahverfi geti búið við snyrtilegt og sómasamlegt umhverfi án þess að þurfa að horfa daglega upp á bílhræ, dekk, felgur og annan sóðaskap við næsta hús.“
Sala
Segist hinn ósátti eigandi vera að reyna að selja húsið og hafa fundið fyrir því að þegar áhugasamir aðilar komi að skoða húsið missi þeir áhugann þegar ástandið á næstu lóð blasi við þeim. Segist eigandinn greiða fasteignagjöld, skatta og önnur lögbundin gjöld eins og aðrir íbúar bæjarins:
„Ég ætlast ekki til sérstakrar meðferðar, heldur þess að kvartanir mínar séu teknar alvarlega og afgreiddar á faglegan og réttlátan hátt.“
Gerir hinn ósátti eigandi ýmsar kröfur í bréfinu um meðhöndlun erindisins og ítrekar að hann krefjist þess að meira verði gert en éftir fyrri kvartanir hans:
„Ég vil taka skýrt fram að ég sætti mig ekki við enn eitt almennt svar um að ekkert sé hægt að gera vegna þess að um einkalóð sé að ræða. Eignarréttur nágranna hlýtur að þurfa að skoðast í samhengi við þær reglur sem gilda um umgengni, úrgang og nýtingu lóða í íbúðabyggð. Hafi bæjaryfirvöld ekki heimildir til að grípa til aðgerða óska ég eftir að það verði útskýrt skriflega með vísan til viðeigandi laga og reglna.“
Segir eigandinn að verði erindinu ekki sinnt með fullnægjandi hætti muni hann kvarta til umboðsmanns Alþingis:
„Ég hef sýnt þolinmæði í rúmlega tvö ár. Á meðan hef ég þurft að búa við þetta ástand og nú hefur það áhrif á tilraunir mínar til að selja heimili mitt.“
Niðurstaða skipulags- og umhverfisnefndar Hveragerðis er að fela umhverfisfulltrúa að svara bréfinu og senda erindi til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og fara fram á að hugsanlegir mengunarvaldar verði fjarlægðir af lóð nágranna hins ósátta eiganda.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗