Brosandi alla leið í bankann með Bond launin - Gerði betri díl en aðrir og fékk þetta greitt fyrir prufuna

Robert Pattinson mun fá háar fjárhæðir fyrir hlutverk sitt sem James Bond, en fjölmiðlar vestanhafs greina frá því að hann hafi einnig fengið greitt fyrir leikaraprufuna.

Jeff Bezos, yfirmaður Amazon, staðfesti að ákvörðun um Pattinson hafi ekki verið tekin fyrr en á föstudaginn, þremur dögum fyrir opinbera tilkynningu. Verður það að teljast áhugavert í ljósi fimm ára leitar og vangaveltum yfir hver tæki við keflinu af Daniel Craig.

Sjá einnig: Jeff Bezos uppljóstrar áhugaverðri staðreynd um valið á Robert Pattinson sem Bond

Upphæðin sem Pattinson hefur fengið og mun fá í sinn hlut vekur einnig athygli. Samkvæmt fjárhagsáætlunum er gert ráð fyrir að Pattinson fái á bilinu 76 til 98 milljónir Bandaríkjadala fyrir þriggja ára samning sinn , auk þeirrar einnar milljónar dala sem hann fékk greidda fyrir prufuna.

Þá hefur verið greint frá því að aðrir sem mættu í prufur fyrir hlutverkið, þar á meðal Callum Turner og Josh O'Connor, hefðu þurft að undirrita samninga um fimm kvikmyndir hefðu þeir hreppt hlutverkið.

Samkvæmt The Mirror voru eigendur kvikmyndaseríunnar um Bond  einnig reiðubúnir að bjóða Pattinson hærri laun.

„Robert var ekki sá sem allir voru að tala um. Aðrir leikarar virtust vera komnir mun lengra í ferlinu. En allt í einu var hann maðurinn sem allir vildu fá“ hefur Mirror eftir heimildarmanni.

Því var einnig haldið fram að Lauren Sanchez, eiginkona Bezos, hafi heillast mjög af áheyrnarprufu Pattinsons.

Amazon hefur ekki staðfest neinar opinberar tölur, en margir sérfræðingar spá því að Pattinson muni fá verulega háa upphæð í sinn hlut.

Quincy Dash, forstjóri og stofnandi almannatengslastofunnar Quincy Dash Co í London, telur að tekjur Pattinsons gætu „farið fram úr tekjum Daniels Craig“.

„Robert Pattinson gæti þénað allt að 120–150 milljónir dollara. Daniel Craig fékk um 100 milljónir dollara fyrir samning sem náði til fimm kvikmynda. Ég spái því að launin verði hærri, þrátt fyrir að samningur Pattinsons nái til færri mynda. Miðað við hvernig samningurinn er uppbyggður, geri ég ráð fyrir að launin séu breytileg, þannig að hann loki ekki á möguleika á meiri tekjum í framtíðinni, og að þau ráðist af velgengni myndanna, þar með talið sölu á varningi, framkomum, samningum við vörumerki og svo framvegis.“

„Ég spái því að tekjur Pattinsons verði meiri en tekjur Daniels Craig, sem gerir hann að þeim leikara sem hefur fengið hæstu greiðslurnar fyrir hlutverk 007 í kvikmyndabálknum.“

Pattinson sagði í yfirlýsingu eftir að tilkynnt var um hann sem hinn nýja Bond:

„James Bond er ein goðsagnakenndasta persóna kvikmyndasögunnar og það er sannkallaður heiður að fá að taka við hlutverki 007. Ég er afar þakklátur þeim Denis, Amy, David, Tönju og öllu starfsfólki Amazon MGM Studios fyrir traustið sem þau sýna mér. Að segja að þetta hlutverk sé draumur sem rætist er vægt til orða tekið. Ég er gríðarlega spenntur fyrir þessu samstarfi og vinnunni sem framundan er með þessu frábæra teymi.“

Ljóst er að Pattinson mun einnig fara brosandi í bankann með launatékkana.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab