Brotist inn á heimili goðsagnarinnar
Formúlu 1-goðsögnin Alain Prost hlaut höfuðáverka er brotist var inn á heimili hans í Nyon í Sviss. Svissneski miðillinn Blick greinir frá.
Fjölskylda Prost var heima þegar grímuklæddir menn brutust inn á heimili fjölskyldunnar. Mennirnir ógnuðu fjölskyldunni, meiddu Prost í höfðinu og neyddu síðan annan fjölskyldumeðlim til að opna öryggisskáp með verðmætum áður en þeir flúðu.
Ekki er vitað hve miklu verðmæti var stolið af fjölskyldunni.
Prost, sem er 71 árs, er einn sigursælasti ökuþór í Formúlu 1. Hann varð fjórum sinnum heimsmeistari en aðeins Lewis Hamilton, Michael Schumacher og Juan Manuel Fangio hafa unnið fleiri heimsmeistaratitla.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗