Ástæða bilunar reynist tímafrek

George Russell er ökumaður Mercedes.

George Russell er ökumaður Mercedes. AFP/Simon Wohlfahrt

Það getur tekið nokkra mánuði að greina nákvæma orsök þess að ökuþórinn George Russell hjá Mercedes féll úr keppni í Formúlu 1-kappakstrinum í Kanada fyrir rúmlega tveimur vikum.

Russell var í forystu þegar bilun í vélarbúnaði neyddi hann til að hætta keppni. Bilunin gerði liðsfélaga hans, Kimi Antonelli, kleift að vinna sinn fjórða sigur í röð.

Tæknistjóri Mercedes, James Allison, sagði að orsökin hafi verið alvarleg bilun í rafhlöðu sem stöðvaði vélina þegar um þriðjungi var lokið af keppninni.

Aðstoðarliðsstjórinn Bradley Lord sagði að bifreiðin hafi þurfi að fara í gegnum sérstakar öryggisráðstafanir áður en hún verði send til Bretlands til frekari rannsóknar.

Vegna þess hve ítarleg rannsóknin er gæti liðið ekki fengið endanlega staðfestingu á orsökinni fyrr en eftir nokkra mánuði. Mercedes mun jafnframt greina gögnin til að koma í veg fyrir að sambærileg bilun endurtaki sig.

Eftir atvikið er Russell 43 stigum á eftir Antonelli í heimsmeistarakeppni ökumanna fyrir kappaksturinn í Monakó um næstu helgi.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅