Fyrsti sigur Bretans
Lewis Hamilton fagnaði vel að kappakstrinum loknum enda langt frá hans síðasta sigri. AFP/Lluis Gene
Bretinn Lewis Hamilton fagnaði í dag sínum fyrsta sigri fyrir Ferrari þegar hann kom fyrstur í mark í Formúla 1 kappakstrinum í Barcelona.
Þetta var fyrsti sigur hans síðan frá Belgíukappakstrinum árið 2024, þegar hann ók fyrir Mercedes.
Bretar röðuðu sér í fyrstu þrjú sætin í kappakstrinum sem hefur ekki gerst síðan árið 1968 en George Russell tryggði sér annað sætið og Lando Norris hjá McLaren hafnaði í því þriðja.
Með sigrinum styrkti Hamilton stöðu sína í baráttunni um heimsmeistaratitilinn. Hann minnkaði forskot Ítalans Kimi Antonelli á toppnum og munar nú aðeins 41 stigi á þeim í stigakeppni ökumanna.
Hamilton hóf keppni úr öðru sæti á ráslínu á eftir Russell, sem ræsti fyrstur og Hamilton naut svo góðs af stafrænum öryggisbíl sem kom á hentugum tíma fyrir hann.
Það gerði honum kleift að taka forystuna þar sem hann var með öflugri dekk en ökumennirnir fyrir aftan hann.
Fyrir aftan hann börðust liðsfélagarnir hjá Mercedes George Russell og Kimi Antonelli.
Antonelli varð fyrir áfalli undir lok keppninnar þegar bíll hans bilaði eftir að hann hafði tekið framúr Russell og hann neyddist til að hætta keppni.
„Ég var með draum ásamt Ferrari liðinu sem hefur virst ómögulegur síðasta árið, en við gáfumst aldrei upp. Við höfum gert miklar breytingar, ég á bestu aðdáendur sem nokkur íþróttamaður getur óskað sér, svo takk til ykkar allra," sagði Hamilton eftir keppnina.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
