Telja sig hafa fundið lausnina
Lið Mercedes í formúlu 1 telur sig hafa greint vandamál vegna tæknibilana sem hafa kostað dýrmæt stig á tímabilinu. Bæði George Russell og Kimi Antonelli hafa þurft að hætta keppni í tveimur af síðustu þremur keppnum vegna tæknibilana.
Tæknistjórinn James Allison segir að vandamálin tengist að mestu rafhlöðukerfinu, þó bilanirnar hafi ekki allar verið nákvæmlega eins. Mercedes vinnur nú að því að innleiða uppfærðar rafhlöðueiningar til að koma í veg fyrir frekari vandræði.
„Þetta er mjög sársaukafullt,“ sagði Allison og bætti við að liðið reyni alltaf að finna slíka galla í prófunum frekar en í keppni. Þegar bilun komi upp sé fyrst brugðist við með varfærnari notkun búnaðarins á meðan unnið sé að varanlegri lausn. Þrátt fyrir vandræðin sagðist Allison bjartsýnn á framhaldið.
Mercedes er enn með 72 stiga forskot á Ferrari í stigakeppni bílasmiða. Í keppni ökumanna leiðir Antonelli með 41 stigs forskoti á Lewis Hamilton og hann er 50 stigum á undan Russell fyrir næsta mót, sem fer fram í Austurríki.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗