Leyfa kælibúnað í hitabylgjunni
Alþjóða akstursíþróttasambandið, FIA, hefur lýst því yfir að austurríski kappaksturinn í Formúlu 1 um helgina sé í hættuflokki vegna hita.
Þetta er gefið út þar sem spáð er að hitastig fari yfir 31 gráður á meðan bílarnir eru á brautinni.
Það þýðir að ökumenn mega nota viðurkenndan kælibúnað sem dælir kældum vökva, eins og glýkóli, í gegnum lagnakerfi í bol sem klæðst er undir keppnisgallanum.
Notkun kælibúnaðarins er ekki skylda en ökumenn sem kjósa ekki að nota hann þurfa að þyngja bílinn um 5 kg til að tryggja að þeir hafi ekki samkeppnisforskot.
Þessi regla var fyrst notuð í Singapúr-kappakstrinum í október á síðasta ári. Hún var síðan einnig notuð í bandaríska kappakstrinum í Austin í Texas í sama mánuði.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗