Bretinn á ráspól í Austurríki
Breski ökuþórinn George Russell mun byrja á ráspól í austurríska kappakstrinum í Formúlu 1 á morgun.
Russell, sem keyrir fyrir Mercedes, var hraðastur allra í tímatökunum. Ferrari-mennirnir Charles Leclerc og Lewis Hamilton koma á eftir honum í öðru og þriðja sæti.
Kimi Antonelli, liðsfélagi Russell og sá sem leiðir heimsmeistaramót ökuþóra, ræsir síðan fjórði. Hollendingurinn Max Verstappen, sem keyrir fyrir Red Bull, byrjar síðan fimmti á morgun.
Austurríski kappaksturinn hefst klukkan 13.00 að íslenskum tíma á morgun.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗