Russell fyrstur í mark í Austurríki
George Russel, ökumaður Mercedes, fór með sigur af hólmi í Formúlu 1-kappakstrinum í Austurríki í dag.
Þetta er annar sigur hans á þessu tímabili og kemur Bretinn sér kemur sér upp í annað sætið í baráttunni um heimsmeistaratitilinn og minnkaði forskot ítalska ungstirnisins Kimi Antonelli niður í 40 stig.
Hollendingurinn Max Verstappen kom annar í mark á meðan Antonelli var þriðji. Lewis Hamilton missteig sig í dag þar sem hann kom fimmti í mark og er nú 51 stigi á eftir Antonelli í fyrsta sætinu.
Næsti kappakstur er á sunnudaginn næstkomandi í Silverstone á Englandi.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗