Ítalinn á ráspól í Belgíu

Kimi Antonelli.

Kimi Antonelli. AFP/Andrej Isakovic

Ítalski ökuþórinn Kimi Antonelli mun ræsa fremstur í belgíska kappakstrinum í Formúlu 1 á morgun.

Antonelli, sem keyrir fyrir Mercedes, var hraðastur allra í tímatökunum sem fóru fram í dag. Hollendingurinn Max Verstappen var næsthraðastur og mun byrja annar á morgun.

Í þriðja sæti er ríkjandi heimsmeistarinn Lando Norris, sem keyrir fyrir McLaren. George Russell, liðsfélagi Antonelli, mun ræsa fjórði.

Ferrari-mennirnir Charles Leclerc og Lewis Hamilton munu hefja leik í fimmta og sjötta sæti.

Belgíski kappaksturinn hefst klukkan 13 á morgun.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅