Heimsmeistarinn á ráspól í Ungverjalandi

Lando Norris er ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1.

Lando Norris er ríkjandi heimsmeistari í Formúlu 1. AFP/Attila Kisbenedek

Ríkjandi heimsmeistarinn Lando Norris, ökumaður McLaren, mun byrja á ráspól í ungverska kappakstrinum í Formúlu 1 á morgun.

Á síðustu stundu í tímatökunni tókst Norris að bæta tíma Lewis Hamilton, ökumanns Ferrari, um 0,012 sekúndubrot og mun því byrja fremstur á morgun.

Hamilton byrjar annar og liðsfélagi hans Charles Leclerc er sá þriðji. Ítalinn Kimi Antonelli, sem leiðir keppni ökumanna, er í fjórða sæti.

Ástralinn Oscar Piastri, sem keyrir fyrir McLaren, ræsir fimmti og Max Verstappen, ökumaður Red Bull, byrjar í sjötta sæti.

Ungverski kappaksturinn hefst klukkan 13 á morgun. „

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅