Hjólaði yfir 100 km í sumarfríinu
Finninn Valtteri Bottas er þekktastur sem Formúlu 1-ökumaður en í stað þess að slaka á í sumarfríinu hefur hann nú tryggt sér keppnisrétt á heimsmeistaramótinu í malarhjólreiðum.
Bottas gekk til liðs við Cadillac fyrir þetta tímabil en hefur enn ekki náð í stig í Formúlu 1. Hann hefur áður ekið fyrir Williams og Mercedes og unnið tíu Formúlu 1-kappakstra.
Bottas tók þátt í 131 kílómetra keppni í malarhjólreiðum í Tékklandi á sunnudag og hafnaði í fimmta sæti í flokki karla á aldrinum 35 til 39 ára. Með árangrinum tryggði hann sér sæti á HM.
„Á meðan hinir slaka á á snekkjunum sínum hjólaði ég 131 kílómetra. Ég varð fimmti í 35-39 ára flokki og tryggði mér sæti á heimsmeistaramótinu,“ skrifaði Bottas á Instagram.
Ástæða þátttöku Bottas er sú að eiginkona hans, Tiffany Cromwell, er atvinnuhjólreiðakona og þau tóku bæði þátt í keppninni. Cromwell hafnaði í sjöunda sæti.
Bottas gæti þó átt erfitt með að taka þátt á HM, sem fer fram í Nannup í Ástralíu 10. og 11. október, en Formúlu 1-kappaksturinn í Singapúr fer fram sömu helgi.
Næsta keppni í Formúlu 1 er í Hollandi 23. ágúst.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗