Hamilton vill auka pressuna á Ítalann

Kimi Antonelli og Lewis Hamilton ræða málin.

Kimi Antonelli og Lewis Hamilton ræða málin. AFP/Andrej Isakovic

Formúla 1 hefst á ný um helgina eftir sumarfrí þegar keppt verður í hollenska kappakstrinum í Zandvoort.

Ítalinn Kimi Antonelli hjá Mercedes er efstur í heimsmeistarakeppni ökumanna, 50 stigum á undan Bretanum Lewis Hamilton hjá Ferrari.

„Við þurfum einfaldlega að vinna hörðum höndum og halda áfram að auka pressuna. Ég held að hann hafi ekki sýnt neina veikleika á þessu tímabili,“ sagði Hamilton.

Mercedes hefur almennt verið með hraðskreiðari bíl en Ferrari á fyrri hluta tímabilsins, en Hamilton vonast til að nýjar uppfærslur Ferrari geti minnkað bilið.

„Liðið vinnur gríðarlega mikið. Við erum á réttri leið með bílinn, en Mercedes er enn fremst. McLaren og Red Bull eru líka mjög sterk og fjögur lið eru nú mjög nálægt hvert öðru,“ sagði Hamilton.

Hamilton hefur enn fremur mikinn áhuga á að vinna í Zandvoort í fyrsta sinn. Hollenski kappaksturinn er einn af fáum sem hann hefur aldrei unnið og verður hann tekinn af dagskrá eftir þetta tímabil.

„Ég hef unnið á nánast öllum hinum brautunum en aldrei hér. Ég er því gríðarlega einbeittur að því að breyta því um helgina,“ sagði Hamilton.

Antonelli segist hins vegar ekki ætla að hugsa um meistaratitilinn heldur einbeita sér að því að halda áfram að skila góðum árangri.

„Einn af andstæðingum mínum er líka ég sjálfur. Það er því mikilvægt að halda ró sinni, einbeita sér að réttum hlutum og fara inn í bílinn með réttu hugarfari,“ sagði Ítalinn.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Formúla 1,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅