388 milljóna fjármögnun lokið
Tinker Tailor, nýsköpunarfyrirtæki Áslaugar Magnúsdóttur, hefur lokið 388 milljón króna fjármögnun á hugmyndastigi.
Brunnur Ventures leiddi fjármögnunina í gegnum vísisjóðinn Brunn III með 250 milljóna króna fjárfestingu. Að fyrirtækinu kemur jafnframt hópur englafjárfesta og ráðgjafa með reynslu frá alþjóðlegum tísku- og tæknifyrirtækjum á borð við Gucci, Tom Ford, Bottega Veneta, DKNY og Airbnb, að því er kemur fram í tilkynningu.
Tinker Tailor er með höfuðstöðvar í San Francisco og þróar gervigreindarlausn sem hjálpar hönnuðum, áhrifavöldum og einstaklingum að koma eigin fatahönnun í framleiðslu.
„Það er langur vegur frá góðri hugmynd að flík sem hægt er að framleiða og selja. Við viljum einfalda þá leið og gefa hönnuðum meira svigrúm til sköpunar. Með Tinker Tailor bjóðum við gervigreindarlausn sem gerir það einfalt að hanna fatnað og fá hann framleiddan. Brunnur hefur frá upphafi haft trú á sýn okkar og þeim tækifærum sem felast í að breyta því hvernig tíska er hönnuð og framleidd. Fjárfestingin gerir okkur kleift að hraða þróun lausnarinnar og koma henni í hendur hönnuða og áhrifavalda,“ segir Áslaug Magnúsdóttir, stofnandi og forstjóri Tinker Tailor, í tilkynningunni.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗