Tvöfalt fleiri nýburar þurfa aðstoð ef móðir tekur þunglyndislyf

Ný íslensk rannsókn bendir til þess að börn kvenna sem taka ákveðin þunglyndislyf á meðgöngu séu rúmlega tvöfalt líklegri til að þurfa aðstoð strax eftir fæðingu. Þórður Þórarinn Þórðarson, nýburalæknir á Landspítalanum, segir mikilvægt að verðandi mæður fái betri upplýsingar um hugsanleg áhrif lyfjanna. Hann varar þó eindregið við því að konur hætti lyfjameðferð án samráðs við lækni. Þórður er gestur í Heilsuhlaðvarpi Lukku og Jóhönnu Vilhjálms þar sem hann ræðir niðurstöður nýrrar íslenskrar rannsóknar á áhrifum SSRI- og SNRI-þunglyndislyfja á nýbura. Rannsóknin birtist nýverið í Læknablaðinu og byggir á gögnum um öll börn sem fæddust á Landspítalanum árið 2023.

Rannsóknin var unnin af Kolku Magnúsdóttur, læknanema, undir leiðsögn Þórðar.

Þurftu oftar súrefni og öndunaraðstoð

Niðurstöðurnar sýndu að um 30% barna mæðra sem tóku SSRI- eða SNRI-lyf á meðgöngu þurftu einhvers konar aðstoð við fæðingu, svo sem örvun, súrefnisgjöf eða öndunarstuðning. Hlutfallið var um 13% hjá börnum mæðra sem ekki tóku lyfin.

Þá þurftu um 19% barnanna aukið eftirlit eða innlögn á Vökudeild eftir fæðingu, samanborið við 13% barna í viðmiðunarhópnum.

Um 11% mæðranna sem rannsóknin náði til höfðu tekið þunglyndislyf úr þessum lyfjaflokkum á meðgöngu.

Þórður segir að börn sem verða fyrir áhrifum lyfjanna í móðurkviði geti átt erfiðara með að aðlagast lífinu utan hans.

„Þau fæðast og í stað þess að gráta eins og er algengast þá bregðast þau við á annan hátt, eru róleg og horfa í kringum sig og virðast ekki sýna sömu streituviðbrögð við fæðinguna,“ segir Þórður.

Einkennin geta meðal annars verið öndunarerfiðleikar, slappleiki, óróleiki og erfiðleikar við brjóstagjöf. Hann tekur þó fram að einkennin gangi yfirleitt yfir á fyrsta sólarhringnum eða innan nokkurra daga.

Mæðurnar ásökuðu sjálfar sig

Þórður segir áhuga sinn á málefninu hafa vaknað fyrir um tuttugu árum þegar hann starfaði á nýburadeild sem læknanemi. Þar varð hann vitni að því þegar nýfætt barn þurfti að leggjast inn vegna öndunarerfiðleika sem taldir voru tengjast þunglyndislyfjum sem móðir þess hafði tekið á meðgöngu.

Viðbrögð móðurinnar sátu í honum.

„Og svona á þessum tíma frá því maður sá þetta fyrst fyrir 20 árum og ég man alveg sérstaklega eftir því að í þessu tilviki þá kom móðirin alveg að fjöllum að þetta gæti hafa verið vegna lyfsins og náttúrulega ásakaði sig fyrir þetta. Og þetta hef ég svo séð óteljandi sinnum,“ segir hann.

Þórður telur því brýnt að konur fái upplýsingar um hugsanleg áhrif lyfjanna áður en kemur að fæðingu, svo þær séu betur undirbúnar ef barnið þarf aukna aðstoð eða eftirlit.

Varar við að konur hætti á lyfjunum

Þrátt fyrir niðurstöðurnar leggur Þórður ríka áherslu á að konur hætti ekki að taka þunglyndislyf upp á eigin spýtur.

„Það er náttúrulega varasamt að segja konum að hætta á þessum lyfjum, það myndi vera mjög varhugavert af því að þá aukast líkur á fæðingarþunglyndi og kvíða sem gæti haft alvarlegar afleiðingar,“ segir hann.

Mikilvægt sé að meta ávinning og áhættu lyfjameðferðar í hverju tilviki fyrir sig og taka mið af andlegri heilsu móðurinnar.

Þórður bendir jafnframt á að skammtastærðir geti haft áhrif á líkur á einkennum hjá nýburum og að reglulegt endurmat lyfjameðferðar sé mikilvægt.

„Við erum heimsmeistarar í notkun lyfja“

Í viðtalinu gagnrýnir Þórður einnig hversu takmarkað aðgengi sé að öðrum meðferðarúrræðum við þunglyndi og kvíða hér á landi, meðal annars sálfræðiþjónustu.

Hann telur að bæta þurfi aðgengi að slíkri þjónustu svo konur hafi raunverulegt val um meðferð, sérstaklega þegar þær eru barnshafandi eða hyggjast eignast barn.

„Við erum heimsmeistarar í notkun lyfja en um leið erum við með mjög takmörkuð önnur úrræði… Þarna liggur kannski stærsta vandamálið, að það sem ætti að vera markmiðið er markvissari lyfjanotkun og einungis þær mæður sem raunverulega þyrftu að vera á lyfinu væru á lyfinu á meðgöngu,“ segir Þórður.

Hann leggur áherslu á að markmiðið sé ekki að hræða verðandi mæður heldur tryggja að þær hafi nægar upplýsingar og aðgang að viðeigandi meðferð.

Rannsóknin sýnir tengsl milli lyfjanotkunar á meðgöngu og aukinnar þarfar fyrir aðstoð hjá nýburum, en niðurstöðurnar einar og sér sanna ekki að lyfin séu orsök allra þeirra erfiðleika sem komu fram.

Hægt er að hlusta á þáttinn á helstu hlaðvarpsveitum: 

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab