Ætla að gera tilraun með nót

Síldarnót tekin um borð í Sigurð VE laust fyrir hádegi á þriðjudag. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Sigurður VE, togari Ísfélags í Vestmannaeyjum, stefnir á að gera tilraun til að veiða síld í nót, en allnokkuð er síðan slík veiðarfæri voru síðast notuð við síldveiðar hér við land.

Nótin var færð um borð í skipið síðasta þriðjudag og vakti það eftirtekt fréttaritara blaðsins sem átti leið hjá.

Jóhannes H. Danner, skipstjóri á Sigurði VE, segir ekki alveg fráleitt að kalla þetta tilraunaveiðar, því óratími sé síðan þessum nótum hafi verið kastað.

„Og það þarf að vita ástandið á þeim, hvort þær standist álagið og þannig. Flotinn hefur breyst síðan þessar nætur voru notaðar síðast,“ segir hann og telur að nótin sem verið var að taka um borð hafi síðast fengið yfirferð 2006.

„Og henni hefur ekki verið kastað síðan.“

Síðustu ár hefur síld verið veidd í flotvörpu en þá er dregið í gegnum torfurnar. Þegar veitt er með hringnót er síldartorfan umkringd með nótinni og hún síðan dregin saman í botninn og aflinn fangaður þannig.

„En við höfum ekki verið að kasta stórri síldarnót síðan áður en menn fóru að veiða þetta inni á Breiðafirði 2007. Þá voru menn með litlar, eða bara gamlar loðnunætur í þessu,“ bætir Jóhannes við.

Sjö þúsund tonn eftir

Hjá hluta útgerða er síldarvertíðinni lokið en Jóhannes segir eitthvað eftir hjá öðrum. Í þeim hópi séu til dæmis Ísfélag, Skinney-Þinganes og Loðnuvinnslan.

„Við eigum eitthvað um sjö þúsund tonn eftir af Íslandssíldinni. Ég á von á að það dugi okkur sjálfsagt fram að jólum.“

Jóhannes segir hafa gengið vel á síld en sú norsk-íslenska hafi klárast fyrir örfáum dögum. Síðustu daga hafi hins vegar verið ótíð á miðunum vestur úr Reykjanesi og veiði dræm, allt þar til í byrjun þessarar viku.

„Menn misstu einhverja síld þarna inn á Faxaflóann sem ég var svona að spá í að fara að kíkja á.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab