Nærri 300 manns starfa við gagnaverin þrjú

Framkvæmdir í fullum gangi á lóð Borealis Data Center á Blönduósi. Mikill kippur varð í fjárfestingu í gagnaverum í ár og ekkert lát virðist á vexti fyrirtækjanna sem leiða greinina. mbl.is/Árni Sæberg

Starfsmannafjöldi stóru gagnaverafyrirtækjanna þriggja hér á landi hefur nær þrefaldast frá árslokum 2023. Þá störfuðu um 100 manns beint við gagnaverin en nú eru þeir taldir vera um 300. Áætlað er að fyrirtækin fjárfesti á þessu ári fyrir rúmlega 50 milljarða í aðstöðu og innviðum, en það jafngildir rúmlega 5% af allri atvinnuvegafjárfestingu í landinu á þessu ári.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í sérstakri umfjöllun um gagnaver í nýjasta hefti Peningamála sem gefið er út af Seðlabankanum.

Gagnaverafyrirtækin þrjú eru atNorth, Verne Global og Borealis Data Center, en tekjur þeirra voru 24 milljarðar árið 2024 og 30 milljarðar í fyrra. Fleiri fyrirtæki starfa á þessum markaði hér á landi en þau eru talsvert minni.

Raforkunotkun gagnaveranna hefur þó dregist saman frá því þegar mest var árið 2022. Þá var hún 1.169 gígavattsstundir, eða um 6% af allri raforku sem framleidd var á Íslandi það ár. Á þessu ári er hins vegar gert ráð fyrir að notkunin verði tæplega 800 gígavattsstundir, eða tæplega 4% af heildarframleiðslunni. Helgast þetta meðal annars af minni umsvifum rafmyntavinnslu á meðan áhersla á gervigreindarvinnslu hefur aukist og tækninni fleygt fram.

Gagnaver þjónusta nú í auknum mæli fyrirtæki sem starfa á gervigreindarmarkaði frekar en fyrirtæki sem stunduðu að grafa eftir rafmyntum. AFP/Emmanuel Croset

Fjórir viðskiptavinir með meiri tekjur en gagnaverin

Frá árinu 2024 hefur færst í vöxt að erlendir viðskiptavinir flytji sjálfir inn dýran tölvubúnað til að hýsa í gagnaverunum, meðal annars til að þjálfa gervigreind. Seðlabankinn bendir á að sú þróun sjáist vel í innflutningstölum. Þannig var tölvu- og fjarskiptabúnaður fyrir tæpa 100 milljarða króna fluttur til landsins árið 2024, en í fyrra var heildarverðmæti slíkra tækja komið yfir 180 milljarða, eða um 12% af öllum vöruinnflutningi til Íslands. Rétt er að geta þess að sú tala nær samt til alls innflutnings í þeim tollaflokkum sem greiningin náði til og er því búnaður sem fór einnig í annað en gagnaver.

Stærstu viðskiptavinir gagnaveranna hafa komið upp innlendum rekstrarfélögum utan um starfsemi sína hér. Tekjur þessara félaga jukust úr um 8 milljörðum árið 2024 upp í 35 milljarða í fyrra. Þar með fóru samanlagðar tekjur þessara félaga fram úr tekjum stóru gagnaverafyrirtækjanna þriggja sem

Tekjur fjögurra innlendra rekstrarfélaga viðskiptavina gagnaveranna jukust úr um 8 milljörðum króna árið 2024 í um 35 milljarða í fyrra þegar félögin tóku nýjan búnað í notkun. Þar með fóru samanlagðar tekjur þeirra fram úr tekjum gagnaverafyrirtækjanna þriggja. Fjögur rekstrarfélög standa á bak við stærstan hluta af vexti útflutningsins, en í tölum Hagstofunnar fellur það undir „önnur tölvuþjónusta“.

Óvenjuleg áhrif á þjóðhagsreikninga

Þegar rekstrarfélögin flytja búnaðinn til landsins færist hann bæði sem fjárfesting og innflutningur í þjóðhagsreikningum. Þannig hækkar fjárfestingin landsframleiðslu en innflutningurinn kemur til frádráttar. Búnaðarkaupin ein og sér hafa því lítil bein áhrif á hagvöxt þótt þau hafi sett verulegan svip á innflutnings- og fjárfestingartölur.

Þegar búnaðurinn er kominn í notkun og innlendu félögin selja tölvuþjónustu úr landi eykst hins vegar mæld landsframleiðsla að öðru óbreyttu. Í greiningu sinni bendir Seðlabankinn á að þessi rekstrarfélög geti aukið tekjur sínar verulega án þess að kaupa meiri hýsingu eða aðra þjónustu hér á landi. Útflutningur geti því vaxið og hagvöxtur aukist án þess að því fylgi fjölgun starfa eða að umsvif þeirra aukist í sama mæli innanlands.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab