Sérfræðingur í líkamstjáningu rýnir í fund Trump og Pútíns – Tók strax eftir einu

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 10:02

Trump og Pútín. Myndir/Skjáskot Daily Mail

Sérkennileg samskipti Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Vladimírs Pútín Rússlandsforseta hafa vakið athygli en leiðtogarnir funduðu í Shenzhen í Kína í morgun.

Þegar Trump gekk inn í herbergið þar sem Pútín beið hans benti hann á rússneska forsetann og spurði í gamansömum tón: „Hver er þetta?“ áður en hann bætti við að Pútín væri „vinur“ hans.

Trump hallaði sér einnig að Pútín og hvíslaði einhverju í eyra hans áður en hann ávarpaði fjölmiðlamenn sem voru viðstaddir.

„Við höfum átt í mjög góðum samskiptum í mörg ár. Við höfum þekkst lengi og ég held að margt gott geti komið út úr þessu,“ sagði Trump.

Judi James, sérfræðingur í líkamstjáningu, rýndi í samskipti leiðtoganna fyrir breska blaðið Daily Mail.

Það fyrsta sem vakti athygli James var að Pútín var þegar mættur í fundarherbergið þegar Trump gekk þar inn. Að hennar mati fólst ákveðin valdasýning í því einu.

„Fyrsta valdasýning Trumps fólst í því að það var hann sem mætti en Pútín var sá sem var látinn bíða. Tafir og bið draga úr valdi og virðingu,“ segir hún.

James segir framkomu Trumps gagnvart Pútín hins vegar hafa einkennst af hlýju. Hann hafi brosað breitt og byrjað að tala við rússneska forsetann áður en þeir voru komnir hvor að öðrum, líkt og hann gæti vart beðið eftir að ræða við hann.

Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að Pútín hafi virst nokkuð stirður og óöruggur áður en Trump gekk inn í herbergið.

Fundur þeirra stóð aðeins yfir í nokkrar mínútur og fór fram í aðdraganda sögulegs fundar þeirra með Xi Jinping, forseta Kína.

Trump hefur lýst yfir vonum um að viðræður leiðtoganna þriggja geti meðal annars orðið skref í átt að því að binda enda á stríðið í Úkraínu.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab