Ljóst hverjir verða í framboði
Gianni Infantino, forseti FIFA, fær tvo mótframbjóðendur í forsetakosningum sambandsins í mars á næsta ári. FIFA staðfesti framboðin í dag.
Philippe Diallo, forseti franska knattspyrnusambandsins, og Kozo Tashima, fyrrum forseti japanska sambandsins, munu bjóða sig fram gegn Infantino. Diallo nýtur stuðnings UEFA.
Infantino hefur sætt harðri gagnrýni undanfarna mánuði vegna áforma um að selja einkafjárfestum hlut í viðskiptalegum réttindum stórmóta FIFA, þar á meðal HM. Hann hætti við áformin eftir mikil mótmæli og hefur verið hvattur til að segja af sér.
Infantino hefur gegnt embættinu frá árinu 2016 og sækist nú eftir því að sitja sitt fjórða kjörtímabil. Kosningarnar fara fram 18. mars í Marokkó.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗