Opnir fyrir tilboðum í Trent Alexander-Arnold
Enski knattspyrnumaðurinn Trent Alexander-Arnold gæti yfirgefið herbúðir spænska stórliðsins Real Madrid þegar janúarglugginn verður opnaður.
Það er Sky í Þýskalandi sem greinir frá þessu en Alexander-Arnold, sem er 28 ára gamall, hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði Real Madrid á tímabilinu.
Hann gekk til liðs við spænska félagið sumarið 2025 frá uppeldisfélagi sínu Liverpool en hefur ekki tekist að vinna sér inn fast sæti í liðinu á tíma sínum í spænsku höfuðborginni.
Bakvörðurinn hefur meðal annars verið orðaður við endurkomu til Liverpool og þá eru Þýskalandsmeistarar Bayern München einnig sagðir áhugasamir um leikmanninn.
Þá hefur hann líka verið sterklega orðaður við Chelsea þar sem Xabi Alonso er knattspyrnustjóri en hann fékk Alexander-Arnold til Madrídar á sínum tíma.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗