Infantino fékk tvö lögleg mótframboð

Philippe Diallo er forseti franska knattspyrnusambandsins.

Philippe Diallo er forseti franska knattspyrnusambandsins. AFP/Franck Fife

Frakkinn Philippe Diallo og Japaninn Kohzo Tashima verða í framboði ásamt sitjandi forsetanum Gianni Infantino þegar kosið verður um nýjan forseta FIFA, alþjóða knattspyrnusambandsins, þann 18. mars næstkomandi í Marokkó.

Það er AFP-fréttaveitan sem greinir frá þessu en framboðsfresturinn til forsetaembættisins rann út í gær.

Svisslendingurinn Ramon Vega, fyrrverandi atvinnumaður í fótbolta, hafði einnig gefið það út að hann ætlaði að bjóða sig fram en hann náði ekki að uppfylla öll þau skilyrði sem þarf til þess að bjóða sig fram til forsetaembættisins.

Til að ná kjöri þurfa frambjóðendurnir 106 atkvæði af 211 atkvæðum en Infantinio hefur verið forseti sambandsins í rúmlega tíu ár og þykir sigurstranglegastur í kjörinu þrátt fyrir harða gagnrýni að undanförnu, sérstaklega frá evrópska knattspyrnusambandinu.

Evrópa er með 55 atkvæði í kjörinu, Afríka 54, Asía 46, Norður- og Mið-Ameríka ásamt Karíbahafinu eru með 35, Eyjaálfa er með 11 og Suður-Ameríka 10 atkvæði.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab