Guðrún Íslandsmeistari í fimmta sinn

Guðrún Brá Björgvinsdóttir.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Ljósmynd/Golfssamband Íslands

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, kylfingur úr Golfklúbbnum Keili, varð í dag Íslandsmeistari í golfi annað árið í röð. Hún lék hringina fjóra á einu höggi undir pari.

Þetta er fimmti Íslandsmeistaratitill Guðrúnar á ferlinum og fer hún þar með fram úr föður sínum, Björgvini Sigurbergssyni, sem varð Íslandsmeistari fjórum sinnum á ferlinum.

Fyrir lokahringinn var Guðrún í góðri stöðu á einu höggi undir pari með þriggja högga forskot á Elsu Marenu Steinarsdóttur úr Golfklúbbnum Leyni.

Mikil spenna var eftir fyrri níu holurnar í dag. Guðrún fékk tvo skolla og einn örn og var því aðeins einu höggi á undan Ragnhildi Kristinsdóttur sem fékk þrjá fugla.

Hins vegar náði Ragnhildur ekki að setja meiri pressu á Guðrúnu og fékk þrjá skolla og einn tvöfaldan skolla á seinni níu. Guðrún fékk fugl og skolla og endaði því hringinn á pari.

Elsa Maren endaði í öðru sæti en hún lék lokahringinn á tveimur höggum yfir pari og lauk mótinu á fjórum höggum yfir pari. Ragnhildur hafnaði í þriðja sæti á sex höggum yfir pari.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er Íslandsmeistari í golfi.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er Íslandsmeistari í golfi. Ljósmynd/Golfssamband Íslands

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅