Dagbjartur Íslandsmeistari annað árið í röð

Dagbjartur Sigurbrandsson með bikarinn í dag.

Dagbjartur Sigurbrandsson með bikarinn í dag. Ljósmynd/Golfssamband Íslands

Kylfingurinn Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur varði Íslandsmeistaratitil sinn á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli.  

Dagbjartur endaði hringina fjóra á tíu höggum undir pari og varð því Íslandsmeistari í annað sinn á ferlinum.  

Fyrir lokahringinn var Dagbjartur í frábærri stöðu með sex högga forystu á Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss en Aron varð í öðru sæti en hann lék samtals á fimm höggum undir pari. 

Dagbjartur fór hring dagsins á pari og það dugði til að tryggja honum Íslandsmeistaratitilinn.

Dagbjartur Sigurbrandsson með bikarinn í dag.

Dagbjartur Sigurbrandsson með bikarinn í dag. Ljósmynd/Golfssamband Íslands

Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1992 sem Íslandsmeistararnir í karla- og kvennaflokki ná að verja titilinn.

Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð í þriðja sæti á þremur höggum undir pari, en hann lék á fjórum undir pari í dag eftir að hafa verið á einu yfir pari fyrir hring dagsins.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅