Risamót fram undan hjá Gunnlaugi

Gunnlaugur Árni Sveinsson.

Gunnlaugur Árni Sveinsson. AFP/CHRISTIAN PETERSEN

Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur leik á bandaríska áhugamannamótinu, US Amateur, í dag. 

Bandaríska áhugamannamótið er með betri áhugamannamótum heimsins en sigurvegari mótsins fær þátttökurétt á Masters-mótinu, Opna bandaríska og Opna breska, þremur af stærstu fjórum mótum heims, á næsta ári. 

Fyrstu tvo dagana leikur Gunnlaugur annan hringinn á Meron Golf Club og hinn á Philadelphia Country Club. 

Að loknum 36 holum komast 64 efstu kylfingarnir áfram í holukeppni. 

Gunnlaugur hefur átt frábært mót og varð fyrr í sumar fyrsti íslenski karlakylfingurinn til að taka þátt á Opna bandaríska meistaramótinu. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅