Gunnlaugur hætti keppni á miðjum hring
Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson er hættur keppni á bandaríska áhugamannamótinu, US Amateur, eftir að klára ekki fyrsta hring.
Bandaríska áhugamannamótið er með betri áhugamannamótum heimsins en sigurvegari þess vinnur sér þátttökurétt á Masters-mótinu, Opna bandaríska og Opna breska.
Það gekk ekki vel hjá Gunnlaugi á fyrsta hringnum sem hætti keppni eftir 11 holur þegar hann var 11 höggum yfir pari.
Hann fékk fjóra skolla, tvisvar þrefaldan skolla og einu sinni tvöfaldan skolla. Hann náði einum fugli og paraði síðan hinar þrjár holurnar.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗