Óliver vann Danann og keppir í undanúrslitum

Óliver Elí Björnsson er að standa sig með prýði í Skotlandi. Ljósmynd/GSÍ

Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili er kominn í undanúrslit eftir sigur á Dananum Christian Photin Hansen í átta manna úrslitum á The Boys’ Amateur Championship í Skotlandi í dag. 

Óliver, sem verður 17 ára gamall í næsta mánuði, hefur nú unnið fjóra leiki í röð í holukeppni á Gailes Links í Skotlandi.

Óliver byrjaði hringinn af krafti og vann fyrstu fimm holurnar. Hann var kominn sjö holur upp eftir níu og var einungis formsatriði að klára leikinn eftir það.

Hansen klóraði í bakkann með fjórum fuglum í röð, en munurinn of mikill og lauk leiknum á fimmtándu holu. Framundan er undanúrslitaleikur gegn einum sterkasta unglingakylfingi Evrópu. Sigurvegarinn tryggir sér sæti í 36 holu úrslitaleik mótsins, sem fer fram á morgun.

Í undanúrslitunum mætir Óliver Frakkanum Tao Pemerika, ríkjandi Evrópumeistara unglinga. Pemerika vann European Young Masters í júlí með sex högga mun.

Óliver hefur leikið frábært golf síðustu daga. Hann var jafn í 118. sæti eftir fyrsta hring höggleiksins, en svaraði með frábærum öðrum hring upp á 66 högg. Það var fjórða besta skor dagsins og tryggði honum sæti í 64 manna holukeppninni.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅