Óliver í úrslit eftir sigur á Evrópumeistaranum

Óliver Elí Björnsson er kominn í úrslit.

Óliver Elí Björnsson er kominn í úrslit. Ljósmynd/GSÍ

Kylfingurinn Óliver Elí Björnsson úr Golfklúbbnum Keili tryggði sér sæti í úrslitum opna breska áhugamannamótsins í piltaflokki á Gailes Links í Skotlandi í dag.

Óliver, sem verður 17 ára gamall í næsta mánuði, gerði sér lítið fyrir og hafði betur gegn Frakkanum Tao Pemerika, sem er nýkrýndur Evrópumeistari unglinga.

Nú hefur Óliver unnið fimm leiki í röð í holukeppninni. Sigurinn í dag var naumur en hann vann Frakkann í bráðabana með fugli. 

Í úrslitunum mun Óliver mæta Svíanum Ludwig Libera í 36 holu úrslitaleik. 

Óliver verður á morgun fyrsti Íslendingurinn til að keppa til úrslita á mótinu, sem er eitt virtasta og sterkasta ungmennamót í heimi.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅