Efnilegur kylfingur látinn aðeins 18 ára

Jessica Bang.

Jessica Bang. Ljósmynd/Women's NSW Open

Ástralski kylfingurinn Jessica Bang er látin aðeins 18 ára að aldri eftir að hafa fengið heilablóðfall.

Bang, sem vann sitt fyrsta mót sem atvinnumaður í aðeins fimmtu tilraun, var að undirbúa sig fyrir mót í Taílandi þann 1. ágúst þegar hún hneig niður.

Hún var flutt í skyndi á sjúkrahús í Bangkok og fór í bráðaaðgerð á heila. Eftir að hafa verið á gjörgæslu í tæpar tvær vikur lést hún í gær.

Bang þótti vera gríðarlegt efni og lýsti WPGA-mótaröð Ástralasíu henni sem „framúrskarandi ungum hæfileika“.

„Hugur og bænir allra hjá WPGA-mótaröð Ástralasíu og golfsamfélagi Ástralíu eru hjá fjölskyldu Jessicu, vinum og öllum þeim sem þekktu hana og elskuðu á þessum ótrúlega erfiðu tímum,“ segir í yfirlýsingu.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅