Náðu glæsilegum árangri í Slóvakíu
Andrea Bergsdóttir náði flottum árangri í Slóvakíu. Ljósmynd/[email protected]
Íslensku kylfingarnir Andrea Bergsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir spiluðu báðar vel á móti í Slóvakíu á LETAS-móti, næststerkustu mótaröð álfunnar.
Andrea hafnaði í fjórða sæti og Hulda í því fimmta. Hulda er nú í fjórða sæti stigalistans og í góðri stöðu í baráttunni um keppnisrétt á Evrópumótaröðinni, sterkustu mótaröð álfunnar.
Rafnhildur Kristinsdóttir er í 13. sæti stigalistans en hún var ekki með í Slóvakíu. Andrea er í 19. sæti.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗