Frábær sigur Ólivers

Óliver Elí Björnsson.

Óliver Elí Björnsson. Ljósmynd/Golfssamband Íslands

Óliver Elí Björnsson, landsliðskylfingur úr Golfklúbbnum Keili, vann glæsilegan sigur á Opna breska áhugamannamóti pilta, The R&A Boys’ Amateur Championship, í gær.

Hann hafði betur gegn Svíanum Ludwig Libera í æsispennandi úrslitaleik á Gailes Links í Skotlandi.

Jafnt eftir 18 holur

Úrslitaleikurinn var jafn frá upphafi. Óliver byrjaði af krafti og vann fyrstu holuna með fugli en Libera svaraði á þeirri fimmtu. Óliver komst aftur yfir á áttundu holu en Svíinn sneri leiknum sér í hag með sigrum á þeirri tíundu og elleftu.

Íslendingurinn svaraði strax, vann tólftu holuna og jafnaði. Fugl á þeirri þrettándu kom honum aftur yfir en Libera vann sextándu og staðan því jöfn eftir fyrstu 18 holurnar.

Spennan hélt áfram eftir hlé. Eftir tólf holur á seinni hringnum var Libera kominn þremur holum yfir en Óliver sýndi mikla yfirvegun þegar á reyndi. Hann jafnaði leikinn á 17. holu og tryggði sér síðan sigur á fyrstu holu bráðabana.

Leið Ólivers í úrslitaleikinn var mögnuð. Hann byrjaði á 36 holu höggleik þar sem hann lék á 76 og 66 höggum og tryggði sér sæti í 64 manna holukeppninni með frábærum lokahring.

Í 64 manna úrslitunum vann hann Skotann Aidan Lawson 3/2 og síðan Írann Adam Fahey í 32 manna úrslitum. Í 16 manna úrslitunum vann hann Frakkann Jayson Piermont eftir ævintýralegan leik. Óliver var þrjár holur upp eftir sex holur en tveimur undir þegar tvær voru eftir. Hann setti þá niður um 13 metra pútt á 18. holu til að jafna og tryggði sér sigur á 20. holu.

Í átta manna úrslitunum hafði hann betur gegn Dananum Christian Photin Hansen og í undanúrslitunum lagði hann Tao Pemerika frá Frakklandi, Evrópumeistara unglinga.

Sögulegur sigur

The Boys’ Amateur Championship er eitt sterkasta unglingamót Evrópu og eitt elsta golfmót heims. Mótið var nú haldið í 106. sinn og á meðal fyrrverandi sigurvegara eru stórstjörnur á borð við José María Olazábal, Sergio García og Matthew Fitzpatrick.

Með sigrinum tryggði Óliver sér þátttökurétt á Opna breska áhugamannamótinu í karlaflokki og í lokaúrtökumótinu fyrir Opna breska meistaramótið, The Open, á næsta ári.

Sigurinn mun einnig skila honum miklu stökki upp heimslista áhugamanna þegar nýr listi verður birtur á miðvikudag.

Þar með lýkur Óliver magnaðri viku í Skotlandi með sögulegum sigri og besta árangri íslensks kylfings í flokki 18 ára og yngri frá upphafi.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Golf,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅